Siggi Ingimundar: Var Kjartan inn á vellinum í gær? 25. mars 2013 14:38 Það andar köldu á milli Sigurðar og Kjartans Atla. Samsett mynd/Sylvía
Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, var ekki ánægður með framkomu Sigurðar Ingimundarsonar, þjálfara Keflavíkur, í leik liðanna í gær. "Ég ætla að kasta kveðju á Sigurð Ingimundarson fyrir að segja að ég geti ekki neitt í körfubolta. Það er alltaf gaman þegar fyrrum landsliðsþjálfarar haga sér svona og eru að rífa kjaft við mann. Íþróttinni til sóma," sagði Kjartan Atli við karfan.is í gærkvöld. Vísir heyrði í Sigurði í dag og spurði hann út í þessu meintu ummæli í garð Kjartans Atla. "Hann ætti kannski að einbeita sér að leiknum frekar en að því hvað ég segi. Ég sagði ekkert við hann. Var hann annars inn á? Ég veit það ekki," sagði Sigurður en af hverju heldur hann að Kjartan sé svona sár? "Ég þekki hann ekki neitt og hef aldrei talað við hann. Ég kann ekkert illa við hann og veit ekkert um hann. Ég sagði ekkert við hann. Hann hefur bara verið pirraður út af leiknum og fundist frábær hugmynd eftir leik að segja þetta. Það er allt í lagi. Hann má gera það eins og hann vill," sagði Sigurður en er Kjartan þá að ljúga? "Ég veit ekkert hvað hann er að gera. Ég hef ekki hugmynd um það. Mér finnst það ekki skipta máli." Það var annars mikill hiti í leiknum í gær og munaði litlu að upp úr syði. "Þetta er bara úrslitakeppnin. Fólki leiðist ekkert að það sé smá líf í þessu. Menn eru að reyna að vinna," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur.
Dominos-deild karla Mest lesið Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn Elías bikarmeistari í Danmörku Fótbolti McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Golf Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Enski boltinn Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sport „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Sjá meira