Snæfell vann Keflavík í spennuleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2013 20:45 Jay Threatt Mynd/Stefán
Snæfell vann tveggja stiga sigur á Keflavík, 79-77, í æsispennandi leik í Stykkishólmi í 19. umferð Dominosdeild karla í körfubolta en liðin skiptu tuttugu sinnum um að hafa forystu í þessum leik. Keflvíkingar hafa nú tapað tveimur leikjum í röð í kjölfarið á sjö leikja sigurgöngu og bæði töpin hafa komið á Vesturlandinu því liðið tapaði í Borganesi á mánudagskvöldið. Ryan Amaroso kórónaði flottan leik með því að koma Snæfelli í 78-75 með körfu og víti að auki þegar 49 sekúndur voru eftir. Keflvíkingar náðu að minnka muninn í eitt stig og fengu sókn tólf sekúndum fyrir leikslok sem þeir nýttu ekki. Jón Ólafur Jónsson kláraði síðan leikinn með því að skora síðasta stig leiksins af vítalínunni. Ryan Amaroso skoraði 25 stig fyrir Snæfell og Jay Threatt var með 18 stig og 8 stoðsendingar. Billy Baptist skoraði 23 stig og tók 12 fráköst hjá Keflavík og Darrel Lewis var með 22 stig. Snæfell komst í 12-8 og 14-11 í fyrsta leikhlutanum en liðin skiptust annars á að hafa forystuna og í lok hans var jafnt 18-18. Snæfell náði fimm stiga forystu í upphafi annars leikhluta, 26-21 en Keflavík jafnaði strax í 26-26 og leikurinn hélst áfram jafn. Snæfell var 44-40 yfir í hálfleik. Snæfell skoraði fjögur fyrstu stigin í seinni hálfleik og komst átta stigum yfir, 48-40. Keflvíkingar komu hinsvegar sterkir til baka og voru tveimur stigum yfir, 58-56, fyrir lokaleikhlutann. Keflavík var fjórum stigum yfir, 69-65, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Snæfellingar svöruðu með níu stigum í röð og náðu fimm stiga forystu, 74-69 en Keflvíkingar jöfnuðu aftur og lokasekúndurnar voru síðan æsispennandi.Snæfell-Keflavík 79-77 (18-18, 26-22, 12-18, 23-19)Snæfell: Ryan Amaroso 25/9 fráköst, Jay Threatt 18/5 fráköst/8 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 11/10 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 9/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6, Ólafur Torfason 5, Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2/4 fráköst.Keflavík: Billy Baptist 23/12 fráköst, Darrel Keith Lewis 22/4 fráköst, Michael Craion 13/14 fráköst, Valur Orri Valsson 7, Magnús Þór Gunnarsson 5, Snorri Hrafnkelsson 4, Arnar Freyr Jónsson 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Sport Fullnaðarsigur Arnars Íslenski boltinn Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Enski boltinn Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Golf Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Fótbolti Í beinni: ÍA - Breiðablik | Tími Skagamanna að renna út Íslenski boltinn Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Körfubolti Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Fótbolti Yankees heiðruðu Charlie Kirk Sport Fleiri fréttir Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Caitlin Clark ekki meira með á tímabilinu Myndir frá endalokum Íslands á EM Luka skaut Ísrael í kaf EM í dag: Flenging og stór bossi í kveðjuþætti Skýrsla Henrys: Eins og lömb leidd til slátrunar „Heilinn var að öskra á mig og líkaminn svaraði ekki“ Hilmar Smári til Litáens Craig vill halda áfram: „Vona að þetta hafi ekki verið síðasti leikurinn“ Sjá meira