Broussard kom Grindvíkingum í Höllina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2013 16:50 Aaron Broussard. Mynd/Anton
Aaron Broussard tryggði Grindavík sæti í bikarúrslitaleiknum í Höllinni þegar hann nýtti annað af tveimur vítum sínum 5,46 sekúndum fyrir leikslok í undanúrslitaleik á móti Keflavík í Toyota-höllinni í Keflavík í dag en Grindavík vann leikinn 84-83. Keflvíkingurinn Billy Baptist átti lokaskot leiksins en það geigaði. Grindvíkingar eru þar með komnir í Höllina í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og í sjöunda skipti frá upphafi en bikarmeistarar Keflavíkur eru hinsvegar úr leik. Grindavík mætir annaðhvort Snæfell eða Stjörnunni í úrslitaleiknum en þau mætast í seinni undanúrslitaleiknum í Stykkishólmi í kvöld. Grindvíkingar voru mun sterkari fyrir hlé, unnu líka síðustu fjórar mínútur fyrri hálfleiksins 14-4 og voru fjórtán stigum yfir yfir í hálfleik, 45-31. Broussard var frábær í fyrri hálfleiknum og var kominn með 17 stig í hálfleik. Keflvíkingar fengu góða hálfleiksræðu frá þjálfara sínum Sigurði Ingimundarsyni og unnu sig inn í leikinn á ný í þriðja leikhlutanum sem Keflavíkurliðið vann 30-21. Lokaleikhlutinn var síðan æsispennandi. Keflvíkingar náðu hinsvegar bara að jafna leikinn margoft en tókst aldrei að komast yfir. Aaron Broussard keyrði upp að körfunni í lokasókn Grindavíkur og kom sér á vítalínuna þar sem hann skoraði síðan sigurstigið.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira