Til varnar jafnréttissinna Oddný Harðardóttir skrifar 23. júní 2012 06:00 Á árunum eftir bankahrunið skaut upp kollinum hugtakið verðleikaþjóðfélag í þjóðmálaumræðunni. Með hugtakinu er vísað til þess að við úthlutun embætta og annarra starfa skuli stuðst við verðleika umsækjenda, hæfni þeirra, reynslu og menntun og að þessir verðleikar skuli metnir á faglegan og óvilhallan hátt af þar til bæru fólki. Verðleikaþjóðfélag er andstæða kunningja- og klíkuþjóðfélagsins þar sem flokkshollusta, kunningskapur, ættir og klíkuskapur ræður því hverjir ráðnir eru til verka. Þar er engin trygging fyrir því að verðleikar og málefnaleg sjónarmið ráði för. Margir hafa á það bent að líta megi á það bæði sem veikleika og styrkleika að Ísland sé lítið og einsleitt samfélag þar sem innbyrðis tengsl eru mikil og boðleiðir stuttar, en jafnframt að einmitt þetta hafi verið rót kreppunnar. Einhver ötulasti baráttumaður síðari áratuga gegn spillingu, kynjamisrétti, ójöfnuði og kauðskum klíkustjórnmálum er Jóhanna Sigurðardóttir sem tók að sér að leiða þjóðina út úr þeim djúpstæða vanda sem íslenska klíkuveldið hafði bakað þjóðinni. Barátta Jóhönnu er vel þekkt. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, gat um þessa baráttu Jóhönnu þegar hún spurðist fyrir um stöðu þess kærumáls sem nú fer hátt í fjölmiðlum eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Fyrir rétt um ári síðan hafði Jóhanna gert upp við sig að mál vildi hún ekki höfða til ógildingar úrskurði kærunefndar jafnréttismála þótt vísir lögfræðingar og ráðgjafar teldu miklar líkur á að úrskurði kærunefndar yrði hnekkt í slíku máli. Jóhanna tók málið afar nærri sér enda mátti hún vera í góðri trú um að málefnalega og faglega hefði verið staðið að mati á 21 umsókn um starf skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu. Af fimm manna úrvalshópi hafnaði sá er starfið fékk í efsta sæti en málshöfðandi í kærumálinu í því fimmta. Hefði það verið rétt af Jóhönnu að standa í málaferlum við kynsystur sína um álitamál sem snerti jafnrétti? Enda svaraði Jóhanna Þorgerði Katrínu svo til á Alþingi: „Ákvörðun mín var sú að fara ekki með málið fyrir dómstóla heldur að reyna að leita sátta jafnvel þó að ríkislögmaður teldi góðar líkur á að ég mundi vinna það mál fyrir dómstólum." Jóhanna Sigurðardóttir nýtti með öðrum orðum ekki þau réttarúrræði sem hún hafði til þess að reyna að hnekkja úrskurðinum. Segja má að þá þegar hafi hún viðurkennt úrskurð kærunefndar jafnréttismála og viljað beygja sig undir hann með sáttaumleitunum við umsækjandann. En sátt var ekki í boði og umsækjandinn höfðaði mál sem nú hefur verið leitt til lykta í héraðsdómi. Og hver er niðurstaðan? Bindandi úrskurður kærunefndar jafnréttismála sem Jóhanna nánast að segja framkallaði sjálf með því að höfða ekki ógildingarmál. En fleira kemur til. Í dóminum er kröfu um skaðabætur hafnað en fallist á sömu fjárhæð miskabóta og forsætisráðuneytið hafði þegar boðið stefnanda í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Þá er það jafnframt niðurstaða dómsins að ekki verði fullyrt að stefnandi hafi átt að fá embættið og er skaðabótakröfu stefnanda því alfarið hafnað. Í þessu ljósi er því hægt að velta vöngum yfir því hvað hefði gerst ef stefnandi hefði hlotið embættið. Hefðu aðrir sem urðu ofar í mati á umsækjendum beðið um úrskurð kærunefndar jafnréttismála? Hver hefði niðurstaðan orðið þá? Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur hefur svo sannarlega margt áunnist í jafnréttismálum. Svo mjög að Ísland er til fyrirmyndar á því sviði. Kynjuð fjárlagagerð og hagstjórn hefur verið innleidd við gerð fjárlaga til að tryggja jafna dreifingu opinberra fjármuna óháð kyni. Undir forystu Jóhönnu var málaflokkur jafnréttismála fluttur undir forsætisráðuneytið, búið er að ljúka við gerð jafnréttisstaðla til að ráðast með markvissum hætti gegn kynjabundnum launamun, unnið hefur verið að aðgerðaáætlun gegn mansali, kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi, austurríska leiðin til varnar þolendum heimilisofbeldis hefur verið lögleidd og unnið er að eflingu Jafnréttisstofu. Senn taka gildi lög sem kveða á um að lágmark 40 prósent stjórnenda fyrirtækja og sjóða séu konur. Helmingur ráðuneytisstjóra eru konur og meirihluti ráðherra er það nú sem stendur. Ofangreindar samfélagslegar breytingar og sigrar verða ekki til af sjálfu sér. Jóhanna Sigurðardóttir hefur í áratugi barist fyrir auknu jafnrétti kynjanna og gerir enn. Hún hefur einnig barist fyrir heilbrigðri stjórnsýslu og verðleikaþjóðfélaginu. Hún hefur engar tryggingar frekar en aðrir fyrir því að þessi tvö markmið geti ekki rekist á endrum og sinnum. Það hefur hún sjálf reynt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Oddný G. Harðardóttir Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Sjá meira