Nauðasamningur gömlu Sjóvár orðinn endanlegur 25. apríl 2012 09:00 Sjóvá Tryggingarekstur félagsins var seldur til nýrra eigenda.
Nauðasamningsumleitunum SJ Eignarhaldsfélags, sem áður hét Sjóvá, lauk 3. apríl síðastliðinn. Því er nauðasamningur félagsins orðinn endanlegur. Í honum felst að kröfuhafar fá 7% af 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna. Kröfuhafarnir, sem eru þrotabú Glitnis, Landsbankinn, Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) höfðu áhyggjur af því að há tekjufærsla, sem myndi myndast við gerð nauðasamningsins gæti haft í för með sér skattskuldbindingu sem félagið myndi ekki ráða við að greiða. Því gæti gerð hans kallað gjaldþrot yfir gömlu Sjóvá með tilheyrandi skiptakostnaði. Á því höfðu kröfuhafarnir ekki áhuga. Því var ákveðið að fara þá leið í ferlinu að afskrifa öll hlutabréf og víkjandi lán en gefa síðan út ný hlutabréf sem nema 0,1% af samningskröfum til kröfuhafa. Þeir veittu síðan ný lán fyrir þeim 99,9% krafna sem eftir standa. Lánin bera enga vexti og gjalddagi þeirra er 31. mars 2015. Hann má framlengja um allt að fjögur ár. Með þessum hætti geta kröfuhafarnir tæmt félagið hægt og rólega eftir því sem eignir þess breytast í verðmæti. - þsj
Fréttir Mest lesið Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira