Drekinn auglýsir eftir Miðjunni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. apríl 2012 07:45 Strákarnir í Græna drekanum hafa farið á kostum í stúkunni í vetur. fréttablaðið/daníel
Þór frá Þorlákshöfn fær tækifæri til þess að jafna einvígið gegn KR í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í kvöld. Þá þurfa KR-ingar að mæta í Iceland Glacial-höllina sem er gríðarmikið vígi. Það er ekki síst að þakka hinni vösku stuðningsmannasveit félagsins – Græna drekanum – sem hefur heldur betur sett svip sinn á deildina í vetur. Drekamenn völtuðu yfir fámenna Miðjumenn, stuðningsmenn KR, í fyrsta leiknum. „Við vinnum alltaf í stúkunni. Það er daglegt brauð hjá okkur," sagði borubrattur forseti Græna Drekans, Heiðar Snær Magnússon. „Við bjuggumst við meiri mætingu hjá Miðjunni og frammistaða þeirra olli vonbrigðum. Ég auglýsi eftir Miðjunni og að þeir fjölmenni og veiti okkur alvöru samkeppni í næstu leikjum." Þó svo að létt skot gangi á milli stuðningsmanna meðan á leik stendur andar ekki köldu á milli manna og Miðjumenn hafa boðið Drekamönnum í létta upphitun fyrir þriðja leik liðanna. „Það verður bara gaman og vonandi koma fleiri Miðjumenn á þann leik. Við mætum allir galvaskir og efumst ekkert um að við munum vinna baráttuna í stúkunni. Þar erum við bestir," sagði Heiðar en hann gengur undir nafninu Byssan rétt eins og ein aðalsprautan í Miðjunni – Ingvar Örn Ákason. „Ég vissi reyndar ekki af því en mér skilst að hann sé búinn að kalla sig Byssuna lengur og er því upprunalega Byssan í þessu einvígi."
Dominos-deild karla Mest lesið Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Sjá meira