Lið Þóru og Söru ekki lengur í peningavandræðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2012 11:45 Sara Björk Gunnarsdóttir eftir landsleik á dögunum. Mynd/Daníel
Íslendingaliðið LDB Malmö er í góðum máum á toppi sænsku kvennadeildarinnar í fótbolta og nú berast fleiri góðar fréttir af liði þeirra Þóru B. Helgadóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Fyrr í sumar voru fréttir af slæmri fjárhagsstöðu LDB Malmö og að félagið væri hugsanlega að stefna í gjaldþrot. Niclas Carlnén yfirmaður félagsins segir nú að mestu peningavandræðin séu að baki og að félagið eigi ekki lengur hættu á því að enda í gjaldþroti. „Þú getur ekki orðið gjaldþrota nema ef þú skuldar pening. Við skuldum engan pening," sagði Niclas Carlnén og hann segir að félagið eigi að geta haldið öllum sínum leikmönnum á næsta tímabili. „Við erum að ræða við nokkra leikmenn en við tölum ekki um einstaka leikmenn fyrr en að við erum búin að ganga frá öllum lausum endum," sagði Carlnén. LDB Malmö er með fimm stiga forskot á Tyresö FF þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum. Þóra Björg Helgadóttir á möguleika á því að verða sænskur meistari þriðja árið í röð og Sara Björk Gunnarsdóttir er á sínu öðru ári með liðinu. „Fjárhagsvandræðin heyra nú sögunni til. Okkur vantar enn 1,3 milljónir fyrir næsta ár en við erum að vinna að ýmsum lausnum. Við eigum að geta reddað þessum peningum sem vantar upp á," sagði Carlnén.
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti „Heimskuleg taktík hjá mér“ Körfubolti Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Körfubolti Sjö íslensk mörk í sjöunda sigri meistaranna Handbolti Zlatan Ibrahimovic kominn með heiðursbelti í tækvondó Fótbolti Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Markið hjá Messi kom eftir 18 sendinga sókn Barca - myndband Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Sjálfsmark Cecilíu réði úrslitum í tapi Inter Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Arna Sif aftur heim Leiðin á HM: Þetta er hálfpartinn eins og á Manhattan Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Segir að Yamal sé afar sorgmæddur og sár Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Mjög spennt að sjá hvað þær geta“ Leikmaður Keflavíkur kallaður inn í landslið Palestínu Mikael ekki með í leikjunum mikilvægu og Logi er lasinn Strákarnir æfðu í sólinni í Bakú Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Fyrrverandi Chelsea-stjarna missti meðvitund á æfingu San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Gefa Íslandi aðeins fimmtán prósent líkur Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Cristiano Ronaldo segist eiga bara eitt eða tvö ár eftir Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Graham Potter: Það er allt í lagi með Alexander Isak Mamma hans trúði honum ekki Setja rúma fjóra milljarða í það að losa fótboltavelli við allt gúmmikurlið Sjá meira