Omnis fagnar tíu ára afmæli 13. ágúst 2012 10:31 ,,Við getum óhikað veitt faglega og oháða ráðgjöf til viðskiptavina okkar varðandi tölvukaup,'' segir Bjarki Jóhannesson, framkvæmdastjóri verslanasviðs Omnis.
Upplýsingatæknifyrirtækið Omnis fagnar tíu ára afmæli í ár. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt mikinn metnað í breitt úrval af fartölvum og segir Bjarki Jóhannesson, framkvæmdastjóri verlanasviðs, að öll helstu merkin fáist í verslunum þeirra. "Omnis býður upp á öll þekktustu merkin á markaðnum. Við getum óhikað veitt faglega og óháða ráðgjöf til viðskiptavina okkar varðandi tölvukaup þar sem við erum ekki að ýta einu vörumerki út umfram önnur. Við teljum okkur vera með sterkustu vélarnar á hverjum tíma og erum með gott úrval tölva í öllum verðflokkum fyrir ólíkar þarfir viðskiptavina okkar." Omnis rekur fjórar verslanir og tölvuverkstæði, í Reykjavík og Reykjanesbæ, á Akranesi og í Borgarnesi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík þar sem einnig er rekin tækniþjónusta fyrir heimili og öflugt fyrirtækjasvið sem sinnir rekstri tölvukerfa hjá fjölmörgum fyrirtækjum á suðvesturhorni landsins. Verðvernd og hátt þjónustustig Omnis leggur mikla áherslu á samkeppnishæf verð og sýnir þann hug í verki með því að bjóða viðskiptavinum verðvernd á tölvum. Fólk getur því verið visst um að fá tölvur á góðu verði. En það er ekki það eina. "Við leggjum okkur fram um að veita góða þjónustu," segir Bjarki. Sem dæmi um áherslu Omnis á þjónustu þá býður Omnis ókeypis árlega þjónustuskoðun fyrir tölvur sem keyptar eru hjá fyrirtækinu og boðið er upp á ókeypis heimsendingu hvert á land sem er. Einnig býður fyrirtækið upp á sérstaka tæknisveit sem aðstoðar viðskiptavini í ýmsum tæknimálum heima fyrir. "Tæknisveitin okkar mætir heim til viðskiptavina, setur upp búnaðinn, sér um lagnavinnu, stafrænar lausnir og fleira." Bjarki segir algengustu verkefni Tæknisveitarinnar snúa að sjónvarpsmálum heima fyrir, að koma myndefni á fleiri sjónvörp, bæta merki á þráðlausu neti og setja upp nettengda heimahýsingu sem geymir miðlægt allt efni heimilisins. Auk fartölva býður Omnis upp á mikið úrval spjaldtölva, þá helst frá Apple og Samsung. "Við lítum á spjaldtölvur sem mikilvægan hluta af tæknivæðingu heimila. Til dæmis þegar kemur að nýtingu spjaldtölvu til að stýra hvernig þú streymir tónlistinni úr tölvunni. Starfsmenn verslana okkar eru mjög færir í notkun spjaldtölva og erum við með ýmsar útfærslur uppsettar í verslunum okkar." Bjarki segir sölu á spjaldtölvum í ár hafa verið mjög góða og í raun hafi hún hafist af fullum krafti í fyrra. Bjarki segir verslunina í Reykjavík einblína helst á tölvur, aukahluti í þær og tæknilausnir fyrir heimilið. "Þangað getur fólk komið og séð hvernig maður nýtir tæknina til að streyma myndefni og tónlist í sjónvörp og hljómflutningstæki. Starfsmenn okkar eru sérfræðingar í slíkum lausnum enda með mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Tæknisveitin getur síðan séð um að setja þetta upp heima hjá fólki." Allar frekari upplýsingar um vörur og þjónustu Omnis má finna á vefnum omnis.is, auk þess sem hægt er að fylgja Omnis eftir á Facebook á slóðinni facebook.com/omnis.is.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Katrín Ósk og Olgeir til Aha Viðskipti innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira