Snæfellingar farnir að vinna jöfnu leikina - unnu Stólana í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2012 21:02 Marquis Sheldon Hall skoraði 32 stig. Mynd/Stefán
Snæfell vann níu stiga sigur á Tindastól, 89-80, í 21. umferð Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Snæfell náði Keflavík að stigum í 5. sætinu með þessum þriðja sigri liðsins í röð en Hólmarar eru áfram í 6. sætinu vegna lakari árangurs í innbyrðisleikjum. Tindastóll er öruggt í úrslitakeppnina þrátt fyrir tapið þar sem að Fjölnir vann ekki sinn leik. Snæfell var með forystu nær allan leikinn en góður sprettur Stólanna kom þeim fimm stigum yfir, 67-72, um miðjan lokaleikhlutann. Snæfell átti hinsvegar frábæran endasprett, vann síðustu fimm mínúturnar 22-8 og leikinn þar með níu stigum. Snæfell hefur oft átt erfitt með að klára jöfnu leikina en Ingi Þór Steinþórsson er greinilega með sína menn á réttri leið. Snæfell var 20-17 yfir eftir fyrsta leikhluta og með sex stiga forskot í hálfleik, 45-39. Marquis Sheldon Hall var sjóðheitur í kvöld en hann skoraði 32 stig og hitti úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Jón Ólafur Jónsson (20 stig/11 fráköst) og Quincy Hankins-Cole (15 stig /14 fráköst) áttu báðir líka góðan leik. Curtis Allen skoraði 28 stig fyrir Tindastól. Tindastóll átti möguleika á að tryggja sér endanlega sæti í úrslitakeppninni með sigri en þar sem að Fjölnir tapaði sínum leik í kvöld er ljóst að Tindastóll verður með í úrslitakeppninni í ár.Snæfell-Tindastóll 89-80 (20-17, 25-22, 16-22, 28-19)Snæfell: Marquis Sheldon Hall 32, Jón Ólafur Jónsson 20/11 fráköst, Quincy Hankins-Cole 15/14 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12, Sveinn Arnar Davidsson 7/7 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 2, Ólafur Torfason 1/4 fráköst.Tindastóll: Curtis Allen 28/7 fráköst/7 stolnir, Maurice Miller 20, Helgi Freyr Margeirsson 7, Hreinn Gunnar Birgisson 6/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 6/9 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 6, Igor Tratnik 4/9 fráköst, Friðrik Hreinsson 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Dagskráin: Meistararnir mæta í Mosfellsbæ og Orkumótið í Eyjum Sport Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Körfubolti „Heilt yfir var ég bara sáttur“ Fótbolti Fleiri fréttir Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Sjá meira