Sigurður Ragnar hrósaði nokkrum leikmönnum eftir tapið á móti Svíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2012 19:00 Landsliðsþjálfarinn var ánægður með frammistöðu Guðnýjar Bjarkar Óðinsdóttur í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, var ánægður með frammistöðu nokkra leikmanna íslenska liðsins þrátt fyrir 1-4 tap á móti Svíum í Algarvebikarnum í dag. Sigurður Ragnar nefndi sérstaklega frammistöðu fjögurra leikmanna íslenska liðsins. „Það var gaman að prófa Hólmfríði í framlínunni og hún var mjög frísk þar til að hún var orðin þreytt í restina. Hún gerði rosalega vel í að fá vítið en það var frábært einstaklingsframtak hjá henni," sagði Sigruður Ragnar um Hólmfríði Magnúsdóttur sem leysti Margréti Láru Viðarsdóttur í stöðu fremsta manns. „Dóra María kláraði vítið vel og stóð sig fínt í leiknum," sagði Sigurður Ragnar en Dóra María tók síðan við fyrirliðabandinu þegar Katrín Jónsdóttir fór útaf á 80. mínútu. „Mér fannst Rakel Hönnudóttir eiga mjög góðan leik í hægri bakverðinum. Það voru ljósir punktar. Mér fannst Guðný Óðinsdóttir standa sig vel og það var flott að sjá hana í byrjunarliðinu því hún virkar í mjög góðu formi," sagði Sigurður Ragnar en Guðný Björk spilaði inn á miðjunni í leiknum. „Það var ekki gaman að koma inn í hálfleik og vera 4-1 undir en mér fannst samt leikmenn vera að reyna að gera vel og að leggja sig fram. Við náðum upp góðu spili og gátum skorað fleiri mörk þannig að þetta var ekki alslæmt. Við erum meira að horfa á frammistöðu leikmanna heldur en úrslit leikjanna í þessu móti en það er auðvitað alltaf mikilvægt að vinna og við stefnum alltaf á það að vinna leikina," sagði Sigurður Ragnar.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Mark Cuban mættur aftur Körfubolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira