Snæfell missti næstum því frá sér unninn leik en vann í framlengingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2012 21:21 Óskar Hjartarson. Mynd/Heimasíða Snæfells
Snæfell vann 100-99 sigur á Tindastól í frábærum framlengdum leik í Síkinu á Sauðarkróki í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld en Snæfellsliðið náði með því að enda fjögurra leikja taphrinu sínu. Snæfell var með unninn leik en misstu niður 16 stiga forskot á síðustu fimm mínútunum. Snæfellsliðið tókst hinsvegar að redda sér í framlengingunni og það var nýliðinn Óskar Hjartarson sem var hetja liðsins í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni en Óskar kom frá Mostra á dögunum. Quincy Hankins-Cole var með 26 stig og 11 fráköst hjá Snæfelli og Jón Ólafur Jónsson skoraði 24 stig. Helgi Rafn Viggósson skoraði 22 stig fyrir Tindastól og Maurice Miller var með þrefalda tvennu; 19 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar. Snæfell byrjaði mjög vel, komst i 10-0, 16-6 og var 24-17 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Snæfell var síðan með sex stiga forskot í hálfleik, 42-36, og var komið með tólf stiga forskot, 71-59, fyrir lokaleikhlutann. Snæfellingar voru í góðum málum um miðjan fjórða leikhlutann enda búnir að ná sextán stiga forskoti, 78-62, og það leit því ekkert út fyrir annað en öruggan útisigur. Stólarnir voru hinsvegar ekki búnir að gefast upp og unnu næstu fimm mínútur 19-2 og Friðrik Hreinsson kom þeim yfir í 81-80 þegar 3,4 sekúndur voru eftir. Marquis Sheldon Hall fékk þá tvö víti og gat tryggt Hólmurum sigurinn. Hann klikkaði hinsvegar á seinna vítinu sínu og því varð að framlengja. Það var síðan Óskar Hjartarson sem tryggði Snæfelli sigurinn með því að skora úr öðru víti sínu 4,1 sekúndu fyrir leikslok en þetta var fyrsti leikur hans með Snæfelli.
Dominos-deild karla Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti „Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“ Fótbolti Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Enski boltinn Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Körfubolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Fleiri fréttir Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Sjá meira