Vinskapurinn hófst á Airwaves 14. desember 2011 08:00 syngur lag eftir grant Sinéad O´Connor syngur lag eftir John Grant á næstu plötu. sinni.
Írska söngkonan Sinéad O"Connor syngur eigin útgáfu af lagi Johns Grant á væntanlegri plötu sinni sem kemur út í febrúar á næsta ári. Platan kallast How About I Be Me (And You Be You)? og kemur út 20. febrúar. Lagið eftir Grant er að finna á fyrstu plötu hans, Queen of Denmark, sem kom út á síðasta ári við góðar undirtektir gagnrýnenda. Bæði Grant og O"Connor komu fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í haust og tókst þá með þeim vinskapur. Til að mynda var Grant á meðal gesta á tónleikum írsku söngkonunnar í Fríkirkjunni. „Þau hittust mikið. Hann kom á giggið og var í kringum hana og borðaði með henni,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Airwaves. Aðspurður segist hann ekkert hafa heyrt af einhvers konar samstarfi á milli þeirra. „Ég fór ekkert inn í þeirra samræður en hann var mjög opinn og í góðu stuði og hún líka.“ Á næsta ári verða 25 ár liðin síðan fyrsta plata O"Connor, The Lion and the Cobra, kom út. Söngkonan ætlar að fylgja henni eftir með stórri tónleikaferð og verður tilkynnt um tónleikastaði á næstunni. Stutt er síðan hún giftist í fjórða sinn og fór athöfnin fram í baksæti bleiks Cadillac í Las Vegas á 45 ára afmælisdegi hennar. - fb
Lífið Tónlist Mest lesið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Blö byrjar árið á bingói Lífið Isiah Whitlock Jr. látinn Lífið Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Lífið Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Menning Fleiri fréttir Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira