Á stór rekstrarfélög 11. nóvember 2011 05:00
Arion banki, eða dótturfélagið Eignabjarg, á hlut í 37 félögum. Þar eru 12 rekstrarfélög en hin eru eignarhaldsfélög sem eru ekki í samkeppnisrekstri. Þar af á bankinn 100% hlut í þremur: Pennanum, Fram Foods og Sigurplasti. Bankinn stefnir á að þau verði öll seld á fyrri helmingi næsta árs. Þá á Arion rúmlega helmingshlut í smásölurisanum Högum. Til stendur að selja 20-30% hlut í Högum í gegnum Kauphöllina í byrjun desember. Arion hefur þegar selt 39% hlut sinn í N1 og allt hlutafé í BM Vallá en Samkeppnisyfirvöld hafa enn ekki gefið samþykki sitt fyrir sölunni. Því eru þeir eignarhlutir enn skráðir í eigu bankans. Bankinn er síðan minnihlutaeigandi að sex rekstarfélögum. Þau eru Ölgerðin Egill Skallagrímsson (20%), Sementsverksmiðjan (23,6%), Farice (43,47%), Lagerinn Dutch Holding (10%), Borgarverk (15%) og Hótel Borgarnes (20,6%). Í þessum félögum telur bankinn sig vera háðan samkomulagi við meirihlutaeigendur þeirra ef hann ætlar að selja hlut sinn. Þá á Arion banki 45% hlut í Klakka, sem hét áður Exista, og var eitt stærsta fjárfestingafélag landsins fyrir bankahrun. Klakki á nokkur af stærstu rekstrarfélögum á Íslandi. Þau eru Skipti (Móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins), VÍS, Lífís og Lýsing hf. Arion á líka 16,4% hlut í Stoðum, sem áður hétu FL Group. Stoðir eiga 99,1% af öllu hlutafé Í TM og 40% hlut í Refresco. Bankinn á líka 42,65% hlut í fasteignafélaginu Reitum, sem áður hét Landic Properties. Til stendur að skrá það félag í Kauphöll á næsta ári. Auk þess á Arion 100% hlut í fasteignafélögunum Landfestum og Landeyjum. Við þetta bætist að bankinn þarf að taka aftur yfir rekstur svínabúa að Brautarmel og Hýrumel í Borgarfirði eftir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ógildingu á yfirtöku Stjörnugríss á þeim. Arion hefur þegar yfirtekið, og selt, ÍAV, 10-11, Heklu, Klett og 70% hlut í Hótel Hamri.
Fréttir Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira