Justin Shouse má spila strax með landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2011 06:00 Justin Shouse Hefur spilað á Íslandi síðan 2005. Fréttablaðið/vilhelm
Bandarísku körfuboltamennirnir Justin Shouse og Darrell Flake fengu í fyrradag úthlutað íslenskum ríkisborgararétti hjá allsherjanefnd Alþingis. Þeir Shouse og Flake eiga báðir að baki farsælan feril í íslensku úrvalsdeildinni og hefur Shouse verið í hópi bestu leikmanna deildarinnar undanfarin ár. Nú gætu þeir hjálpað íslenska landsliðinu og samkvæmt reglum FIFA má velja þá strax í landsliðið. „Það eru breyttar reglur frá því sem var. Nú þarf reyndar að sinna pappírsvinnu til FIBA Europe en leikmenn eru löglegir um leið og þeir samþykkja umsóknina. Það þarf ekki að vera ríkisborgari í tvö eða þrjú ár eins og var áður," sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ. Það má bara vera með einn leikmann af erlendum uppruna í mótum á vegum FIBA og það sama gildi á Norðurlandamótum. „Þetta er eitthvað sem við munum skoða en þeir eru báðir í Bandaríkjunum og við erum því ekki að hlaupa upp til handa og fóta núna," sagði Friðrik Ingi en nýi landsliðsþjálfarinn, Peter Öqvist, tilkynnti í vikunni 22 manna hóp fyrir Norðurlandamótið í sumar og þar er enginn leikmaður af erlendum uppruna.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Sigurvegari Stokkhólms-maraþonsins látin aðeins þrítug Sport Fleiri fréttir Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Sjá meira