Seldu gangagögnin á 100 milljónir 16. mars 2011 06:30
Vegagerðin keypti í árslok 2009 rannsóknargögn Greiðrar leiðar hf. vegna ganga undir Vaðlaheiði á 100 milljónir króna. Að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra rennur þessi upphæð inn í Vaðlaheiðargöng hf. sem hluti hlutafjár Vegagerðinnar í félaginu. Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og fulltrúi Greiðrar leiðar í stjórn Vaðlaheiðarganga, segir stærsta hluta kostnaðarins vegna rannsóknargagnanna felast í jarðfræðirannsóknunum og borunum sem gerðar voru undir stjórn Ágústs Guðmundssonar jarðfræðings á árinu 2005. Margar fleiri úttektir liggi einnig að baki, til dæmis varðandi hugsanlegar fornminjar á svæðinu. Í ársreikningi Greiðrar leiðar fyrir árið 2008 eru rannsóknargögn félagsins metin á 60,2 milljónir króna. Vegagerðin greiddi hins vegar 100 milljónir fyrir gögnin ári síðar, eins og fyrr segir. „Mismunurinn er uppsafnaðar verðbætur sem samkomulag var um að greiddar yrðu ofan á kostnaðinn,“ útskýrir Pétur Þór og undirstrikar að aðeins sé um verðbætur að ræða; engir vextir hafi verið reiknaðir ofan á útlagðan kostnað Greiðrar leiðar. - gar
Fréttir Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira