Auglýsingar munu birtast í fréttaveitu Facebook 21. desember 2011 21:00 Þessi nýjung virkar þannig að fyrirtæki greiða Facebook fyrir að breyta uppfærslum og öðru efni sem notendur hafa "líkað" í auglýsingar. mynd/AP
Notendur samskiptasíðunnar Facebook munu brátt sjá auglýsingar í fréttaveitu (e. News feed) síðunnar. Talsmaður Facebook segir að auglýsingarnar munu birtast í janúar á næsta ári. Í tilkynningu frá Facebook kemur fram að stjórnendur síðunnar muni fylgjast náið með auglýsingunum og tryggja að ekki sé brotið á rétti notenda. En ekki eru allir á eitt sáttir með þessa nýjung og segja hana brjóta á friðhelgi notenda. Að auki verða auglýsingarnar í svipuðu formi og venjulegar uppfærslur svo að erfitt verður að greina á milli kostaðs efnis og annars efnis. Ekki verður hægt að koma í veg fyrir birtingu auglýsinganna (e. sponsored stories) en notendur munu þó geta eitt stökum skilaboðum út af fréttaveitu sinni. Facebook ræður því hvaða auglýsingar birtast í fréttaveitunni enda fylgist samskiptasíðan náið með notkun hvers notenda fyrir sig. Þannig verður hægt að áætla hvaða auglýsing höfðar til tiltekins einstaklings. Þessi nýjung virkar þannig að fyrirtæki greiða Facebook fyrir að breyta uppfærslum og öðru efni sem notendur hafa "líkað" í auglýsingar.
Tækni Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira