Hildur fór fyrir endaspretti Snæfells í Grafarvogi | Snæfell í 4.sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2011 21:00 Hildur Sigurðardóttir. Mynd/Anton
Snæfell vann níu stiga sigur á Fjölni, 94-85, í Garfarvogi í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í 14. umferð sem klárast á morgun. Hildur Sigurðardóttir skoraði 9 af 18 stigum sínum á síðustu þremur mínútum leiksins en Snæfell hafði þá misst bandarísku stelpuna Kieraah Marlow af velli með fimm villur. Kieraah Marlow var með 25 stig og 15 fráköst í leiknum en Hildur var með 15 fráköst og 8 stoðsendingar auk stiganna 18. Björg Einarsdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Helga Hjördís Björgvinsdóttir skoruðu allar 12 stig og Hildur Björg var líka með 14 fráköst og 4 stoðsendingar. Brittney Jones átti góðan leik fyrir Fjölni í kvöld en hún var með 28 stig, 7 stoðsendingar og 8 stolna bolta. Birna Eiríksdóttir skoraði 14 stig. Fjölnir var með frumkvæðið í upphafi leiks en Snæfell var komið fimm stigum yfir, 17-22, þegar 69 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhlutanum. Fjölnir skoraði fimm síðustu stig leikhlutans og jafnaði metin í 22-22. Snæfell komst í 27-22 í byrjun annars leikhluta en Fjölnisliðið var fljótt að jafna og komst síðan þremur stigum yfir 37-34, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Snæfell skoraði hinsvegar sex síðustu stig leikhlutans og var 40-37 yfir í hálfleik. Snæfell komst í 43-37 og 44-39 í upphafi seinni hálfleiks en Fjölnisliðið náði í framhaldinu góðum spretti og komst mest sjö stigum yfir áður en Snæfell náði að minnka muninn í 62-59 fyrir lokaleikhlutann. Staðan var 71-71 þegar Snæfell missti Kieraah Marlow útaf með fimm villur og útlitið var því ekki bjart. Þetta kveikti hinsvegar í Snæfellsliðinu em breytti stöðunni úr 73-71 fyrir Fjölni í 73-83 á aðeins rúmum tveimur mínútum. Hildur Sigurðardóttir skoraði níu af þessum tólf stigum. Fjölni minnkaði aðeins muninn í lokin en Snæfell fagnaði mikilvægum sigri í baráttunni fyrir sæti í úrslitakeppninni. Liðið fór upp í 4. sætið og upp að hlið KR en KR heldur þriðja sætinu á betri árangri í innbyrðisviðureignum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Handbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira