Þorleifur Ólafsson: Þurfum heldur betur að læra að spila á móti svæði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2011 08:00 Þorleifur Ólafsson. Mynd/Stefán
Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindvíkinga, skoraði mikilvægar körfur þegar Grindavík vann Lengjubikarinn í DHL-höllinni í gær. Þorleifur var ánægður með sigurinn í leikslok en ekki með leik liðsins. „Þetta var mjög erfitt og góður sigur af því að við spiluðum illa í sókninni. Það er mjög gott að hafa unnið þetta á vörninni því við spiluðum góða vörn í restina og náðum að stoppa þá í lokin. Það er mjög táknrænt að við skyldum vinna þetta á vörninni af því að við höfum verið að spila mjög góða vörn," sagði Þorleifur. „Ég var opinn og setti nokkur niður en ég hefði getað sett fleiri opin skot niður. Við vorum skelfilegir á móti svæðinu og það er eitthvað sem við þurfum að laga. Það verður klárlega æft að spila á móti svæði á næstu vikum," sagði Þorleifur. „Við höfum verið að spila sóknina okkar vel upp á síðkastið og liðin hafa verið í erfiðleikum með okkur einn á einn. Þau hafa því þurft að fara í svæðisvörn. Við höfum ekki spilað nógu vel á móti svæði og þurfum bara að laga það," sagði Þorleifur. „Það var sætt að vinna með einu stigi. Það er pressa á okkur að standa okkur og við erum að reyna að "fíla" það að vera með pressu. Við erum með gott lið og ætlum okkur að vinna en þetta er bara Lengjubikarinn og við erum ekkert búnir að vinna neitt ennþá," sagði Þorleifur. „Þetta er einn titill í hús sem er bara fínt en þetta er ekki einn af þessu stóru titlum sem við viljum fá. Ef við ætlum að ná þeim þá þurfum við heldur betur að læra að spila á móti svæði," sagði Þorleifur.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira