Grindvíkingar lentu í vandræðum í Grafarvoginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2011 20:48 Mynd/Stefán
Grindvíkingar lentu í vandræðum með Fjölni í Grafarvogi í kvöld í fimmtu umferð Lengjubikars karla í körfubolta en unnu að lokum 83-78 sigur. Grindavík var með tíu stiga forskot í hálfleik en Fjölnir kom sér aftur inn í leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 20-9. Grindavík var búið að vinna B-riðilinn og tryggja sér sæti í undanúrslitunum fyrir þennan leik þar sem að Haukar töpuðu á Ísafirði í gærkvöldi. Grindvíkingar hafa unnið alla tólf leiki sína í vetur og eru líka á toppi Iceland Express deildar karla. Grindvíkingar breyttu stöðunni úr 16-16 í 23-16 og voru 26-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Grindavík komst síðan í 28-19 í upphafi annars leikhluta en í stað þess að stinga Fjölnisliðið af þá tókst Fjölnismönnum að minnka aftur muninn. Grindavík hleypti þeim þó ekki of nálægt og var á endanum komið með tíu stiga forskot í hálfleik, 48-38. Fjölnismenn byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti, unnu fyrstu sex mínútur þriðja hlutans 18-6 og komust fyrir vikið yfir í 56-54. Árni Ragnarsson skoraði átta stig á þessum kafla. Fjölnir var síðan 58-57 yfir fyrir lokaleikhlutann en Grindavík skoraði aðeins níu stig í þriðja leikhlutanum. Leikurinn hélst jafn í fjórða leikhlutanum þar til að Grindavík náði góðum spretti og komst yfir í 75-69. Fjölnir minnkaði muninn aftur í þrjú stig en Grindavík var 79-74 þegar rúm mínúta var eftir. Grindvíkingar héngu á forskotinu og unnu sinn fimmta sigur í röð í Lengjubikarnum.Lengjubikar karlar, B-riðillFjölnir-Grindavík 78-83 (19-26, 19-22, 20-9, 20-26)Fjölnir: Calvin O'Neal 30/9 fráköst, Nathan Walkup 20/9 fráköst, Árni Ragnarsson 15/5 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 9/4 fráköst, Jón Sverrisson 2/7 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 2.Grindavík: Giordan Watson 19, J'Nathan Bullock 18/6 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 13/7 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 7/7 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 7, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Ólafur Ólafsson 6, Þorleifur Ólafsson 4, Þorsteinn Finnbogason 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Sjá meira