Njarðvíkurkonur upp í annað sætið - þriðja tap KR í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2011 20:48 Mynd/Stefán
Njarðvíkurkonur eru komnar upp í annað sæti Iceland Express deildar kvenna í körfubolta eftir ellefu stiga sigur á KR, 84-73, í DHL-höllinni í kvöld. KR-liðið vann fimm fyrstu leiki sína en hefur nú tapað þremur leikjum í röð. Njarðvíkurliðið er aftur á móti á miklu skriði undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar en liðið hefur nú unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Lele Hardy átti frábæran leik en hún var með 30 stig og 12 fráköst og Shanae Baker var með 18 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar. Erna Hákonardóttir var stigahæsti íslensku leikmanna liðsins með fimmtán stig. Sigrún Ámundadóttir skoraði 23 stig fyrir KR, Erica Prosser var með 20 stig og Helga Einarsdóttir bætti við 13 stigum og 10 fráköstum. Margrét Kara Sturludóttir skoraði hinsvegar aðeins 7 stig og munar mun minna. Njarðvík byrjaði leikinn af krafti og var komið í 15-5 eftir rúmar fjórar mínútur en Erna Hákonardóttir skoraði þrjár þriggja stiga körfur á upphafsmínútum leiksins. KR minnkaði muninn í 14-18 en Njarðvík var 21-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Njarðvíkurliðið byrjaði annan leikhlutann eins vel og þann fyrsta og var komið í 30-17 eftir aðeins þrjár mínútur. Njarðvík hélt góðu forskoti fram að hálfleik en KR-liðið náði að minnka muninn í sjö stig, 38-45, fyrir hálfleik. Njarðvíkurkonur bættu við í þriðja leikhlutanum sem þær unnu 25-17 og voru því fimmtán stigum yfir, 70-55, fyrir lokaleikhlutann. KR skoraði sjö fyrstu stigin í fjórða leikhlutanum og minnkaði muninn í átta stig, 62-70. KR kom muninum niður í fjögur stig, 71-75, þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir ekki síst fyrir frábæran leik Sigrúnar Ámundadóttur sem leiddi endurkomu KR-liðsins í seinni hálfleiknum. Njarðvík svaraði hinsvegar með fimm stigum í röð og landaði frábærum ellefu stiga sigri, 84-73.KR-Njarðvík 73-84 (16-21, 22-24, 17-25, 18-14)KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 23/9 fráköst, Erica Prosser 20/5 fráköst/5 stoðsendingar, Helga Einarsdóttir 13/10 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 10/8 fráköst/6 stoðsendingar, Margrét Kara Sturludóttir 7/5 fráköst.Njarðvík: Lele Hardy 30/13 fráköst, Shanae Baker 18/8 fráköst/8 stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 15, Eyrún Líf Sigurðardóttir 7, Petrúnella Skúladóttir 4/5 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 4/6 fráköst, Sara Dögg Margeirsdóttir 4, Harpa Hallgrímsdóttir 2/4 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Handbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira