Birgir Leifur í 26.-38. sæti að loknum fyrsta keppnisdegi 25. október 2011 20:54
Birgir Leifur Hafþórsson er í 26.-38. að loknum fyrsta keppnisdegi úrtökumótsins fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Birgir lék á 1 höggi yfir pari vallar í dag eða 73 höggum. Alls komast 22 kylfingar áfram á 2. stig úrtökumótsins af þessum velli. Birgir fékk þrjá fugla (-1) og fjóra skolla (+1) á hringum í dag. Bandaríkjamaðurinn Phillip Mollina er efstur á -6. Birgir er ekki langt á eftir efstu mönnum því þeir sem eru í 13.-19. sæti eru á -1. Þetta er í fyrsta sinn sem Birgir Leifur tekur þátt á úrtökumóti fyrir PGA mótaröðina. Keppnisfyrirkomulagið er með svipuðum hætti og gengur og gerist á úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina. Alls verða leiknir fjórir hringir á Pinehurst Magnolia vellinum í Norður-Karólínu þar sem þetta úrtökumót fer fram. Um 1000 kylfingar taka þátt á 1. stiginu sem leikið er á 13 völlum víðsvegar um Bandaríkin. Um 20% af þeim komast áfram á 2. stigið sem leikið er á 6 völlum. Þar kemst svipað hlutfall inn á þriðja stigið sem jafnframt er lokaúrtökumótið. Á það mót mæta margir þekktir kappar sem náðu ekki að halda keppnisrétti sínum á PGA mótaröðinni á þessari leiktíð.
Golf Mest lesið Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Fleiri fréttir Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira