Birna fyrst til að taka þátt í tíu úrslitaeinvígum um titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2011 08:00 Birna Valgarðsdóttir. Mynd/Stefán
Birna Valgarðsdóttir fyrirliði Keflavíkurliðsins í Iceland Express deild kvenna í körfubolta verður í eldlínuni í dag í fyrsta leik úrslitaeinvígisins á móti Njarðvík. Birna brýtur þá blað í sögu úrslitakeppni kvenna með því að verða fyrsti leikmaðurinn sem nær því að taka þátt í tíu úrslitaeinvígum um titilinn. Birna átti áður metið með fimm öðrum leikmönnum, Önnu Maríu Sveinssdóttur, Erlu Þorsteinsdóttur, Guðbjörgu Norðfjörð, Helgu Þorvaldsdóttur og Kristínu Björk Jónsdóttur, en Birna er að taka þátt í sínum fyrstu lokaúrslitum frá árinu 2008. Birna var fyrst með í lokaúrslitum vorið 1999 þegar Keflavík tapaði 0-3 á móti KR en fyrsti Íslandsmeistaratitilinn kom árið eftir þegar Keflavík vann 3-2 sigur á KR eftir að hafa unnið oddaleik í KR-húsinu. Birna hefur alls fimm sinnum orðið Íslandsmeistari en hún vann titilinn 2000, 2003, 2004, 2005 og 2008. Birna á möguleika á að lyfta bikarnum í annað sinn sem fyrirliði en hún var einnig fyrirliði Keflavíkurliðsins sem vann Íslandsmeistartitilinn 2005. Flest úrslitaeinvígi í úrslitkeppni kvenna 1993-2010:9 - Anna María Sveinsdóttir 9 - Birna Valgarðsdóttir (með 2011, tíunda skiptið) 9 - Erla Þorsteinsdóttir 9 - Guðbjörg Norðfjörð 9 - Helga Þorvaldsdóttir 9 - Kristín Björk Jónsdóttir 8 - Hanna Björg Kjartansdóttir 8 - Marín Rós Karlsdóttir (með 2011, níunda skiptið) 7 - Erla Reynisdóttir 7 - Hildur Sigurðardóttir 7 - Kristín Blöndal 7 - Svava Ósk Stefánsdóttir
Dominos-deild kvenna Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Körfubolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Besta sætið: Af hverju er ekki búið að semja við Snorra? Sport Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Fleiri fréttir Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Sjá meira