Ótrúlegar sviptingar í Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2011 17:32 Lisa Karcic í leik með Keflavík. Hún tryggði sínum mönnum sigur í dag.
Keflavík er komið í 1-0 í úrslitarimmunni gegn Njarðvík í Iceland Express-deild kvenna eftir sigur í æsispennandi leik, 74-73. Liðin höfðu skipst á að vera með forystuna í leiknum en Dita Liepkalne kom Njarðvík yfir, 73-72, með þriggja stiga körfu þegar fimm sekúndur voru til leiksloka. Það virtist ætla að verða lokatölur leiksins en Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, tók leikhlé þegar fimm sekúndur voru til leiksloka. Hann lagði upp kerfi sem ekki gekk upp, því að boltinn gekk laus í teignum í sekúndubrot áður en að Lisa Karcic hrifsaði hann til sín og skilaði honum snyrtilega í körfuna, rétt áður en leiktíminn rann út. Ótrúlegar lokasekúndur en Keflavík stóð uppi sem sigurvegari. Njarðvík hafði forystuna eftir fyrri hálfleik, 38-34, en Keflavík tók frumkvæðið í seinni hálfleik og leiddi lengst af í þriðja leikhluta. Njarðvíkingar voru þó yfirleitt skrefinu á undan í fjórða leikhluta en leikurinn var svo í járnum síðustu mínúturnar. Marina Caran var stigahæst Keflvíkinga með 28 stig en Lisa Karcic kom næst með fimmtán stig auk þess sem hún tók níu fráköst og stal boltanum níu sinnum. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði tólf stig og tók tíu fráköst. Shayla Fields skoraði 29 stig fyrir Njarðvík, Julia Demirer átján og Liepkalne fimmtán. Keflavík-Njarðvík 74-73 (34-38)Keflavík: Marina Caran 28, Lisa Karcic 15/9 fráköst/9 stolnir/3 varin skot, Bryndís Guðmundsdóttir 12/10 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 9, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 6/5 fráköst/5 stoðsendingar, Hrund Jóhannsdóttir 2, Ingibjörg Jakobsdóttir 2.Njarðvík: Shayla Fields 29/7 fráköst/6 stoðsendingar, Julia Demirer 18/14 fráköst, Dita Liepkalne 15/14 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 6, Ína María Einarsdóttir 3, Anna María Ævarsdóttir 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira