Aðeins einu víti frá Suðurnesjalausum undanúrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2011 17:30 Keflvíkingar eru eina Suðurnesjaliðið sem er í undanúrslitunum í ár. Mynd/Valli
Það munaði ótrúlega litlu að ÍR-ingar hefði slegið Keflvíkinga út úr átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta í gær og séð til þess að ekkert Suðurnesjalið hafi verið í undanúrslitunum sem hefjast um helgina. Keflavík náði að tryggja sér framlengingu með frábærum endaspretti þar sem sigur liðsins var síðan aldrei í hættu. ÍR-ingurinn James Bartolotta klikkaði á víti fimmtán sekúndum fyrir leikslok í venjulegum leiktíma og því má segja að úrslitakeppnin hafi verið einu víti frá Suðurnesjalausum undanúrslitum. Keflavík er því eina Suðurnesjaliðið í undanúrslitum í ár alveg eins og fyrir sex árum sem er jafnframt eina annað skiptið frá árinu 1995 þar sem Suðurnesin eiga ekki í það minnsta helmingin af liðunum í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Keflvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistarartitilinn þegar þeir voru eina Suðurnesjaliðið í undanúrslitunum fyrir sex árum. Keflavík vann þá 3-1 sigur á ÍR í undanúrslitum og tók síðan Snæfell 3-1 í lokaúrslitunum. Keflavík hafði þá slegið Grindavík 2-1 út úr átta liða úrsltitunum á sama tíma og ÍR sópaði út Njarðvíkingum. Það lítur út fyrir að Suðurnesjamenn séu að missa eitthvað tökin sem þeir voru með á úrslitakeppninni á árunum 1995 til 2004 þegar þrjú Suðurnesjaliðið komust í undanúrslit í sjö af tíu skiptum. Þrjú Suðurnesjalið hafa ekki komist alla leið í undanúrslitin síðan þá. Suðurnesjalið í undanúrslitum úrslitakeppni úrvalsdeildar karla:(Frá því að núverandi fyrirkomulag var tekið upp 1995)2011 - 1 (Keflavík)2010 - 2 (Keflavík, Njarðvík)2009 - 2 (Keflavík, Grindavík)2008 - 2 (Keflavík*, Grindavík)2007 - 2 (Njarðvík, Grindavík)2006 - 2 (Njarðvík*, Keflavík)2005 - 1 (Keflavík*)2004 - 3 (Njarðvík, Grindavík, Keflavík*)2003 - 3 (Njarðvík, Grindavík, Keflavík*)2002 - 3 (Njarðvík*, Grindavík, Keflavík)2001 - 2 (Njarðvík*, Keflavík)2000 - 2 (Njarðvík, Grindavík)1999 - 3 (Njarðvík, Grindavík, Keflavík*)1998 - 2 (Njarðvík*, Keflavík)1997 - 3 (Njarðvík, Grindavík, Keflavík*)1996 - 3 (Njarðvík, Grindavík*, Keflavík)1995 - 3 (Njarðvík*, Grindavík, Keflavík)* Íslandsmeistari
Dominos-deild karla Mest lesið Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Fótbolti Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Már klessti á bakkann og HM er í hættu Sport Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Enski boltinn Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fótbolti Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Fótbolti Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Fótbolti Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Körfubolti Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Sjá meira