Sex af tíu vilja fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm 24. september 2010 06:30 Alls vilja 61,2 prósent landsmanna ákæra einhvern af ráðherrunum í ríkisstjórninni sem sat við völd í hruninu. Aðeins meðal stuðningsmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokks er meirihluti fylgjandi ákærum. Mynd/GVA
Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að einhverjir af ráðherrunum í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem sat í hruninu verði ákærðir fyrir landsdómi. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. Alls sögðust 61,2 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni vilja ákæra einhvern ráðherra fyrir landsdómi. Um 38,8 prósent vildu ekki ákæra neinn af ráðherrunum. Mikill munur er á afstöðu fólks til ákæranna eftir því hvaða stjórnmálaflokk það sagðist styðja. Þannig vildi meirihluti stuðningsmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokks ákæra einhvern af ráðherrunum fyrrverandi. Stuðningsmenn Samfylkingarinnar skiptast í tvö horn. Tæpur helmingur vill ákæra ráðherra en rúmur helmingur vill það ekki. Um fjórðungur sjálfstæðismanna vill ákæra ráðherra, en þrír af hverjum fjórum segjast andvígir því. Ekki er tölfræðilega marktækt að reikna afstöðu fylgismanna annarra flokka. Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í könnuninni tók afstöðu til spurningarinnar, tæplega 80 prósent. Afstaða fólks virðist ekki fara eftir kynferði, svipað hlutfall karla og kvenna vill ákæra ráðherrana. Þingnefnd undir forystu Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, þríklofnaði í afstöðu sinni til þess hvort ákæra ætti ráðherrana.- bj /
Landsdómur Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fleiri fréttir Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Sjá meira