Svaraði ekki beint um stuðning allra í ríkisstjórn við Icesave 17. desember 2010 11:43
Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra og þingmaður VG svaraði því ekki beint þegar hann var spurður að því á þingi í dag hvort Icesave málið hafi verið samþykkt í ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna. Þá sagðist hann ætla að sjá til með það hvort Icesavemálið farið að lokum í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það var samdóma álit allra ráðherra í ríkisstjórn að láta drögin að nýju Icesave samkomulagi ganga til Alþingis til umfjöllunar," sagði Ögmundur og sagðist vona að menn beri gæfu til að taka málefnalega á því þar. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem spurði ráðherrann upphaflega, fór þá aftur í pontu og sagði að ráðherrann svari ekki einföldum spurningum. Ögmundur tók þá aftur til máls og sagði þá að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu ef þau eru „gríðarlega umdeild". Núna liggi fyrir drög að samkomulagi í Icesave sem bíði umfjöllunar þingsins. „Af þeirri niðurstöðu munu viðbrögðin í samfélaginu ráðast," sagði Ögmundur og bætti við að viðbrögð sín munu ráðast af umfjöllun málsins á þingi. Hann bætti við að sér þætti dapurlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn væri að „taka niður um sig" í Icesave málinu.
Icesave Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent B sé ekki best Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Fleiri fréttir Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Sjá meira