Hagar minnka um þriðjung með sölu 10/11 15. september 2010 06:00 Ein verslana 10-11 Fyrirtækið rekur 23 verslanir undir merkjum 10-11 á suðvesturhorninu og Akureyri. Fréttablaðið/vilhelm
Verslanir 10-11 hafa verið teknar út úr Haga-samstæðunni og verða þær settar í opið söluferli á næstu mánuðum. Þetta jafngildir því að Hagar verði í kringum þrjátíu prósentum minni en áður. Matvöruverslanir Haga verða eftir þetta 38 í stað 61. Með sölu 10-11 er ætlunin að dreifa eignarhaldi á matvörumarkaði og gefa fleirum kost á því að láta að sér kveða á markaðnum, að því er segir í tilkynningu frá Arion banka. Rekstri Haga var skipt upp í vor og nokkrar einingar færðar inn í aðskilin dótturfélög. Verslanir 10-11 fóru inn í eitt félag. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir ekki stefnt að því að selja fleiri verslanir úr Haga-samstæðunni aðrar en verslanir 10-11 og þær tískuverslanir sem samið var um að Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, fái að kaupa. Enga klásúlu er að finna í bókum Arion banka sem bannar Jóhannesi að kaupa verslanir 10-11. Í samkomulagi hans við Arion banka á dögunum felst hins vegar að Jóhannesi og fjölskyldu hans er meinuð samkeppni við Haga á matvörumarkaði á næstu átján mánuðum. Höskuldur telur mjög líklegt að matvörukeðjan verði seld áður en fresturinn rennur út. - jab
Fréttir Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira