Risna bankans áttfaldaðist á fjórum árum 14. apríl 2010 02:30
Kostnaður við ýmiss konar risnu, boðsferðir, veisluhöld og veiði, var margfalt hærri í Landsbankanum þegar mest var en í hinum stóru bönkunum. Árið 2007, þegar lengst var gengið í slíkum kostnaði, varði Landsbankinn 751 milljón í risnu, Glitnir 336 milljónum og Kaupþing 200 milljónum. Risnukostnaður Landsbankans á tímabilinu 2004 til 2008 nam 2.054 milljónum. Árið 2004 var hann 94,3 milljónir en eins og fyrr segir 751 milljón árið 2007, og hafði því áttfaldast. Fram kemur í skýrslunni að upplýsingarnar sem fengust frá Glitni hafi reyndar verið ófullkomnar. Þannig vantar til dæmis allar upplýsingar um risnukostnað Glitnis árin 2004 til 2006. Miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja var skipting risnukostnaðarins milli útgjaldaliða ólík milli bankanna. Þannig varði Landsbankinn mestu fé í boðsferðir, næstmestu í gestamóttökur og því næst veiði og íþróttaviðburði. Kaupþing varði mestu í gestamóttökur og veiði, og Glitnir mestu í veiði og viðburði. - sh
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Innlent Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Innlent Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin Erlent Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Erlent Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Innlent Hafa uppgötvað djöflabýflugu Erlent Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Innlent Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Innlent Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Innlent Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Innlent Fleiri fréttir Ekið á barn í annað sinn á sama tíma og sama stað Skjálftum fækkar og kvikan hægir á sér Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Verða með leiðtogaprófkjör 31. janúar Mikið undir á næsta sáttafundi flugumferðarstjóra Vill hætta að kaupa auglýsingar á samfélagsmiðlum Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – seinni dagur Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Ágreiningur, slagsmál og líkamsárás Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Tekist á um afgreiðslu velferðarnefndar Þörf á endurskoðun meðferðarheimila fyrir börn Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Leiðtogaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Mælist nú ekki með eins jákvætt viðhorf til kvenleiðtoga Nýr lögreglustjóri fljótur að ákveða sig og nýir vextir hjá Arion Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Skyggnst inn í Hegningarhúsið Enginn gleymir þessum degi fyrir tveimur árum Sjá meira