Byssuslagur í búningsklefa Washington Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. janúar 2010 13:45 Gilbert Arenas.
Lögregluyfirvöld rannsaka þessa dagana hreint út sagt ótrúlega uppákomu í búningsklefa NBA-liðsins Washington Wizards. Leikmenn liðsins, Gilbert Arenas og Javaris Crittenton, miðuðu þá byssum á hvorn annan er þeir rifust um spilaskuld Arenas sem hann var óviljugur að greiða. Arenas hefur farið mikinn á Twitter eftir atvikið og hefur gert lítið úr atvikinu sem honum finnst vera blásið upp. Ekki víst að allir séu sammála honum um að það sé eðlilegt að vera með byssur í skápnum sínum og síðan að miða byssu á liðsfélaga. NBA er ekki með neina rannsókn á atvikinu heldur sér lögreglan í höfuðborginni um málið. NBA mun því líklegast ekki grípa til sérstakra ráðstafana fyrr en þeirri rannsókn er lokið. Arenas hefur viðurkennt að hafa verið með nokkrar byssur í skápnum sínum. Félag hans segir þó að byssurnar hafi ekki verið hlaðnar. Arenas segist hafa geymt byssurnar þarna þar sem hann hafi ekki viljað hafa byssur á heimili sínu þar sem er ungabarn. Lögreglan hefur gert allar byssurnar upptækar. Arenas segir að lögreglan vilji fá að vita hvort um sé að ræða löglegar byssur. Afar strangar reglur eru um byssueign í Washington. NBA-deildin leyfir löglega byssueign leikmanna en meinar þeim að hafa slíkan búnað á NBA-stöðum eða þegar leikmenn ferðast á vegum deildarinnar.
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Fleiri fréttir „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sjá meira