Deildinni skipt í tvo riðla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. janúar 2009 18:05 KR leikur í A-riðli en Valur í B-riðli. Mynd/Valli
Nú hefur Iceland Express deild kvenna verið skipt í tvo riðla og er búið að raða niður leikjunum í fyrstu umferðinni í báðum riðlum. Átta lið eru í deildinni og fara þau fjögur efstu í A-riðil og hin fjögur í B-riðil. Liðin leika nú tvöfalda umferð - heima og að heiman - áður en kemur að sjálfri úrslitakeppninni. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta fyrirkomulag er notað hér á landi. Í stað þess að fjögur efstu liðin komast beint í úrslitakeppnina eins og raunin hefur verið hingað til komast nú sex lið í úrslitakeppnina. Liðin sem leika í A-riðli komast öll í úrslitakeppnina. Hins vegar komast efstu tvö liðin í A-riðli beint í undanúrslit úrslitakeppninnar en hin tvö þurfa að keppa við efstu tvö liðin úr B-riðlinum. Þannig mætir liðið sem verður í þriðja sæti A-riðils liðinu verður í öðru sæti B-riðils í öðrum leiknum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og neðsta liðið í A-riðli mætir efsta liðinu í B-riðli í hinum. Liðin taka öll með sér þau stig sem þau hafa unnið sér inn í vetur með sér í sína riðla. Leikið verður í riðlunum bæði á miðvikudaginn og fimmtudaginn næstkomandi og hefjast leikirnir allir klukkan 19.15. A-riðill:Staðan: Haukar 26 stig Keflavík 22 Hamar 18 KR 16Næstu leikir: Miðvikudagur: Keflavík - Hamar Fimmtudagur: Haukar - KRB-riðill:Staðan: Valur 14 stig Grindavík 8 Snæfell 6 Fjölnir 2Næstu leikir: Miðvikudagur: Grindavík - Snæfell Miðvikudagur: Valur - Fjölnir Úrslitakeppnin: 1. umferð: 3A - 2B 4A - 1B Undanúrslit: 1A - ? 2A - ?
Dominos-deild kvenna Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Fleiri fréttir Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Sjá meira