Iceland Express-deild karla: Keflavík vann Grindavík Ómar Þorgeirsson skrifar 22. nóvember 2009 21:14 Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Arnþór
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem hæst bar Suðurnesjaslagur Keflavíkur og Grindavíkur þar sem Keflavík fór með sigur af hólmi. Þá vann Fjölnir sigur gegn Hamri og ÍR lagði lánlaust lið FSu að velli. Keflavík hélt sigurgöngu sinni áfram þegar það vann 97-89 sigur gegn Grindavík en staðan var 52-44 í hálfleik. Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur hjá Keflavík með 22 stig en Rashon Clark og Sverrir Þór Sverrisson skoruðu 21 stig hvor. Hjá Grindavík var Darrell Flake stigahæstur með 31 stig en Brenton Birmingham skoraði 17 stig. Leikur Fjölnis og Hamars var jafn og spennandi allt fram á síðustu sekúndur þegar heimamenn reyndust sterkari og unnu 87-79 sigur. Christopher Smith var stigahæstur Fjölnismanna með 26 stig en Tómas Heiðar Tómasson kom næstur með 22 stig. Hjá Hamri var Marvin Valdimarsson stigahæstur með 32 stig en Andre Dabney skoraði 15 stig. Sigur ÍR gegn FSu var í raun aldrei í hættu þar sem gestirnir leiddu 11-20 eftir fyrsta leikhlutann og 23-31 í hálfleik. ÍR-ingar héldu svo uppteknum hætti í síðustu tveimur fjórðungunum og unnu að lokum sannfærandi 59-83 sigur. Steinar Arason var stigahæstur hjá ÍR með 18 stig en Hreggviður Magnússon kom næstur með 16 stig og tók jafnframt 11 fráköst. Hjá heimamönnum í FSu var Aleksas Ziminickas stigahæstur með 20 stig.Úrslitin í kvöld: Keflavík-Grindavík 97-89 (52-44) FSu-ÍR 59-83 (23-31) Fjölnir-Hamar 87-79 (39-44)
Dominos-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira