Veikindi hjá karlalandsliðinu í körfubolta Ómar Þorgeirsson skrifar 26. ágúst 2009 16:30 Jón Arnór Stefánsson er tæpur fyrir leikinn í kvöld. Mynd/Arnþór
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta stendur nú í ströngu í undirbúningi sínum fyrir leikinn gegn geysisterku landsliði Svartfellinga í B-deild Evrópukeppninnar ytra í kvöld. Fannar Ólafsson varð eftir heima á Íslandi eftir að hafa veikst um helgina og sömu sögu er að segja af Sveinbirni Claessen. „Fannar var kominn með fjörtíu stiga hita á sunnudagskvöld og gat því ekki gefið kost á sér. Sveinbjörn Claessen átti þá að fara með í hans stað en hann var þá líka orðinn veikur og treysti sér ekki í ferðalagið. Það er erfitt að segja hvort um er að ræða þessa svinaflensu eða eitthvað annað. Ég talaði við Fannar í dag og hann sagði mér að læknarnir væru ekki enn búnir að taka sýni eða neitt slíkt og honum var bara ráðlagt að taka því rólega," sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdarstjóri KKÍ í samtali við Vísi. Nú er útlit fyrir að hvorki Jón Arnór Stefánsson né Jóhann Árni Ólafsson geti heldur leikið vegna veikinda. „Landsliðsþjálfarinn tjáði mér í dag að hvorki Jón Arnór né Jóhann Árni hefðu getað æft í morgun og ég hugsa að ef þeir verði tæpir fyrir leikinn þá muni þeir ekki spila. Ég held að það sé ekki skynsamlegt að vera að pína þá í þennan leik og taka þar með áhættuna á að þeir muni missa af leiknum gegn Hollandi um næstu helgi," sagði Friðrik Ingi að lokum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Fleiri fréttir Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Sjá meira