Njarðvík sló út Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. september 2009 22:06 Magnús Þór Gunnarsson mætti sínum gömlu félögum í Keflavík í kvöld. Mynd/Anton
Njarðvík sló út Keflavík í fjórðungsúrslitum Powerade-bikarkeppni karla sem lauk í kvöld, 79-76. Njarðvík mætir KR í undanúrslitunum sem fara fram á miðvikudagskvöldið. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Grindavík og Snæfell. Njarðvík byrjaði betur í leiknum í kvöld en Keflvíkingar náðu þó forystunni skömmu fyrir leikhlé og höfðu þá þriggja stiga forystu, 41-38. Keflvíkingar héldu forystunni með naumindum í þriðja leikhluta en þeir grænklæddu komust á mikið flug um miðbik fjórða leikhlutans og breyttu stöðunni úr 60-69 í 75-70. Leikmenn Keflavíkur náðu þó að minnka muninn í eitt stig á ný fyrir lokamínútu leiksins en Njarðvíkingar klikkuðu ekkert á vítalínunni á lokamínútunni og tryggðu sér þriggja stiga sigur. Magnús Þór Gunnarsson og Jóhann Árni Ólafsson skoruðu sautján stig hvor og Guðmundur Jónsson var með þrettán stig. Sigurður Þorsteinsson skoraði 20 stig fyrir Keflavík og Hörður Axel Vilhjálmsson átján. Sigurður tók þar að auki ellefu fráköst. Grindavík vann nauman sigur á ÍR, 68-64, í spennandi leik þar sem liðin skiptust á að vera með forystu átta sinnum í leiknum. Arnani Bin Daanish skoraði 22 stig fyrir Grindavík og tók tíu fráköst. Ómar Örn Sævarsson skoraði fimmtán stig. Hjá ÍR var Nemanja Sovic stigahæstur með fimmtán stig en Gunnlaugur Elsuson var með fjórtán. Að síðustu vann Snæfell sigur á Stjörnunni á heimavelli, 96-83. Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði sautján stig fyrir Snæfell og Fannar Freyr Helgason 20 fyrir Stjörnuna. Fjórungsúrslitum kvenna lauk einnig í dag þegar að Grindavík lagði Keflavík, 49-39, á útivelli. Undanúrslitin fara fram á þriðjudaginn þar sem Haukar mæta Hamar annars vegar og KR liði Grindavíkur hins vegar.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Fleiri fréttir Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Sjá meira