Dallas sló San Antonio út eftir aðeins fimm leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2009 09:00 Josh Howard og Brandon Bass fagna sigri í nótt. Mynd/GettyImages
Dallas Mavericks varð þriðja liðið til að tryggja sér sæti í annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar liðið vann 106-93 sigur á San Antonio Spurs á útivelli. Dallas vann þar með einvígið 4-1. Þetta var í fyrsta sinn síðan 2006 sem Dallas kemst áfram upp úr fyrstu umferð úrslitakeppninnar en liðið vann þrjá síðustu leiki einvígisins. Tim Duncan þurfti hinsvegar að sætta sig við það í fyrsta sinn á ferlinum að detta út í fyrstu umferð. „Við tókum eitt lítið barna-skref í átt að titlinum með því að vinna þetta einvígi," sagði Jason Kidd og bætti við. "Nú byrjar þetta allt upp á nýtt. Við fáum kannski einn dag til að njóta sigursins en ekki meira," sagði Kidd. Dallas mætir annaðhvort Denver eða New Orleans í næstu umferð en Denver er 3-1 yfir í því einvígi. Dirk Nowitzki skoraði 31 stig fyrir Dallas, Jason Terry kom með 19 stig af bekknum og Josh Howard var með 17 stig. Dallas liðið vann 7 af síðustu 9 leikjum sínum í deildarkeppninni og hefur því unnuð 11 af síðustu 14 leikjum sínum. Tim Duncan skoraði 30 stig og Tony Parker bætti við 26 stigum en eins og áður í þessu einvígi þá fengum þeir litla hjálp frá öðrum leikmönnum í liðinu. „Þeir voru með meira vopnabúr og spiluðu betur en við," sagði Duncan fámall en þegar San Antonio datt síðast út úr 1. umferð árið 2000 þá gat hann ekki verið með vegna hnémeiðsla.
NBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira