Staða Klinsmann í hættu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. apríl 2009 12:20 Jürgen Klinsmann, stjóri Bayern München. Nordic Photos / Bongarts
Þýskir fjölmiðlar spá því að staða Jürgen Klinsmann, knattspyrnustjóra Bayern München, sé í mikilli hættu eftir að liðið beið afhroð í Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gær. Bayern er fallið úr leik í þýsku bikarkeppninni og er í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá toppsætinu þegar átta leikir eru eftir. Um síðustu helgi tapaði Bayern fyrir toppliði Wolfsburg, 5-1. Bayern var svo heppið að sleppa við 4-0 tap fyrir Barcelona í gær þar sem Lionel Messi og félagar gerðu ítrekað grín að varnarmönnum þýska liðsins. „Það ættu engar ákvarðanir að vera teknar í dag," sagði Karl-Heinz Rummenigge sem ásamt Uli Höness eru í forsvari fyrir félagið. „Þetta var mikil skömm fyrir okkur en það er best að sofa á svona hlutum og taka svo skynsamlegar ákvarðanir." Rummenigge hefur verið stuðningsmaður Klinsmann á leiktíðinni en forseti félagsins, Franz Beckenbauer, hefur ekki verið eins jákvæður í hans garð. „Þetta var algjör ringulreið. Þeir litu út eins og skólastrákar. Fyrri hálfleikurinn var sá versti sem ég hef séð hjá Bayern," sagði hann í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Fleiri fréttir Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Sjá meira