Fótbolti

Toney á­kærður fyrir líkams­á­rás á skemmti­stað

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Toney er þrítugur framherji.
Toney er þrítugur framherji. Catherine Ivill - AMA/Getty Images

Ivan Toney, landsliðsmaður Englands í fótbolta og leikmaður Al-Ahli í sádiarabísku úrvalsdeildinni, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás.

BBC greinir frá

Árásin á að hafa átt sér á skemmtistað við Wardour Street í miðborg Lundúna þann 6. desember 2025.

Toney var ákærður þann 31. júlí síðastliðinn og mun mæta fyrir dómara þann 24. september næstkomandi.

Toney hefur verið í sumarfríi síðan hann vann bronsið með Englandi á HM.

Talsmaður Toney sagði við Sky Sports:

 „Ivan er meðvitaður um ákæruna og þótt honum sé eðlilega brugðið hlakkar hann til að fá tækifæri til að hreinsa nafn sitt fyrir dómi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×