Ég er stoltur af mínu liði 16. mars 2009 21:27 Hreggviður Magnússon "
Það eru auðvitað vonbrigði að tímabilið sé á enda, mér fannst við eiga meira inni," sagði Hreggviður Magnússon leikmaður ÍR í samtali við Vísi eftir að lið hans féll úr leik gegn Grindavík í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. "Grindvíkingarnir eiga hrós skilið fyrir góðan leik og við áttum ekki svör við sterku liði þeirra í dag. Við náðum rispum á þá en glufur í vörninni hjá okkur gáfu þeim galopin þriggja stiga skot og þetta er síðasta liðið í deildinni sem þú mátt gefa svoleiðis," sagði Hreggviður. ÍR-ingarnir riðu á vaðið og sendu erlendu leikmennina sína heim þegar kreppan skall á í haust og þó flest liðin hafi fylgt fordæmi þeirra á sínum tíma, eru þau mörg hver komin með erlenda leikmenn fyrir lokasprettinn í deildinni. Við spurðum Hreggvið út í þessi mál. "Við gáfum út yfirlýsingu um það þarna strax í haust að við ætluðum að vera með íslenskt lið og stóðum við það. Fleiri lið lýstu því yfir að þau ætluðu ekki að vera með erlenda leikmenn en hafa nú hrúgað til sín útlendingum svona korteri fyrir úrslitakeppni og mér þykir það kannski ekki það skemmtilegasta. En ég er stoltur af mínum strákum og stoltur af mínu liði og hlakka til að mæta aftur til leiks á næsta ári," sagði Hreggviður í samtali við Vísi.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Fleiri fréttir NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Sjá meira