Haukafólkið Slavica og Yngvi valin best Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2009 14:30 Slavica Dimovska hjá Haukum var kosin besti leikmaðurinn. Mynd/Vilhelm
Haukakonan Slavica Dimovska, leikmaður deildarmeistara Hauka, var nú rétt áðan valin besti leikmaður seinni hluta Iceland Express deildar kvenna í körfubolta. Þjálfari hennar hjá Haukum, Yngvi Gunnlaugsson, var valinn besti þjálfarinn. Slavica Dimovska lék frábærlega með Haukaliðinu sem vann sjö fyrstu deildarleikina í seinni hlutanum og tryggði sér með því deildarmeistaratitilinn. Slavica var með 20,9 stig, 4,8 stoðsendingar og 3,9 stolna bolta að meðaltali í seinni hlutanum en hún hitti þá úr 43,4 prósent af 53 þriggja stiga skotum sínum. Keflavík átti flesta leikmenn í úrvalsliðinu eða tvo. Þrír leikmanna fimm manna úrvalsliðsins voru einnig valdar í liðið fyrir fyrri hlutann. Það eru Slavica, Birna Valgarðsdóttir úr Keflavík og Signý Hermannsdóttir úr Val. Pálína Gunnlaugsdóttir úr Keflavík og Sigrún Ámundadóttir úr KR voru nú valdar í fyrsta sinn í úrvalslið í vetur. KR-ingurinn Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir var valin dugnaðarforkurinn en þau verðlaun er fyrir þann leikmann sem leggur mikið að mörkum til síns liðs þó að ekki teljist það allt í tölfræðinn. Gróa er frábær varnarmaður og alltaf á eftir öllum lausum boltum út um allan völl. Verðlaun fyrir seinni hluta Iceland Express deildar kvenna: Úrvalslið Slavica Dimovska, Haukum Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Birna Valgarðsdótir, Keflavík Sigrún Ámundadóttir, KR Signý Hermannsdóttir, Val Besti leikmaðurinn: Slavica Dimovska, Haukum Besti þjálfarinn: Yngvi Gunnlaugsson, Haukum Dugnaðarforkurinn: Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR
Dominos-deild kvenna Mest lesið Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ Sport Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Handbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Sá besti í Super Bowl til Chiefs Sport Fleiri fréttir Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Uppgjörið: Grindavík - Valur 75-83 | Valur vann framlengdan naglbít Sjá meira