Iverson staðfestir áhuga Grizzlies á Twitter-síðu sinni Ómar Þorgeirsson skrifar 27. ágúst 2009 10:30 Allen Iverson. Nordic phtotos/AFP
Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er enn ekki búinn að ná lendingu í sínum málum og alls óvíst er hvar leikmaðurinn, sem er fáanlegur á frjálsri sölu frá Detroit Pistons, muni leika á næsta keppnistímabili í NBA-deildinni. Fyrr í vikunni var talið að leikmaðurinn væri að nálgast Charlotte Bobcats og Iverson viðurkenndi sjálfur að hann myndi gjarnan vilja leika aftur undir stjórn Larry Brown, sem þjálfaði Iverson hjá Philadelphia 76ers á sínum tíma. Bobcats er hins vegar til sölu og á í talsverðum fjárhagslegum erfðileikum og því ólíklegt að félagið geti tekið við leikmanninum út af þessarri óvissu og óreiðu varðandi fjárhaginn. Miami Heat var einnig sterklega orðað við Iverson en félagið hefur til þessa ekki getað búið til svigrúm í launakostnaði sínum til þess að geta boðið leikmanninum almennilegan samning vegna reglna um launaþak í deildinni. Iverson tilkynnti hins vegar á Twitter-síðu sinni í gær að Memphis Grizzlies sé búið að gera honum samningstilboð og forráðamenn félagsins hafa síðar staðfest fregnirnar. Búist er við því að Iverson muni reyna að ganga frá sínum málum á næstu dögum en leikmaðurinn lék aðeins 57 leiki vegna meiðsla á síðasta keppnistímabili með Nuggets og Pistons og skoraði að meðaltali 17,5 stig í þeim leikjum sem er lægsta meðal skorið á ferli hans til þessa í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira