Úrvalsvísitalan niður um rúmt prósent - annan daginn í röð 4. september 2008 15:31 Forráðamenn Eik banka heilsa Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallarinnar, við skráningu bankans á markað fyrir rúmu ári.
Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka féll um 6,2 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins sem litaðist af rauðum lit lækkunar á hlutabréfamarkaði. Þetta er jafnframt annar dagurinn í röð sem Úrvalsvísitalan lækkar um rúmt prósent. Þá féll gengi bréfa í Existu um 4,79 prósent í dag og Eimskipafélagsins um 4,64 prósent. Gengi bréfa í Straumi og Century Aluminum féll um rúm 2,5 prósent. Alfesca, Atorka, Glitnir og Marel lækkuðu um rúmt prósent en önnur félög fóru niður um tæpt prósent. Ekkert félag hækkaði á sama tíma. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,18 prósent og er þetta annar dagurinn í röð sem vísitalan lækkar um meira en prósentustig á milli daga en í gær fór hún niður um rúm 1,3 prósent. Vísitalan stendur nú í 4.121 stigi. Lækkunin hér er í svipuðum takti og á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Þeir hafa þó lækkað talsvert meira. FTSE-vísitalan í Bretlandi féll um rúm 2 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi féll um 3,0 prósent og Cac-40 vísitalan í Frakklandi féll jafn mikið. Báðar helstu vísitölur Bandaríkjanna hafa á sama tíma fallið um rétt rúm tvö prósent frá upphafi viðskiptadagsins.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira