Bailey: Engar skattgreiðslur á fjórum árum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. nóvember 2008 15:36 Damon Bailey í leik með Grindavík í haust. Mynd/Stefán
Körfuknattleiksmaðurinn Damon Bailey segir að engin gögn séu að finna um að tekjuskattur hafi verið greiddur af launum hans á þeim rúmum fjórum árum sem hann lék körfubolta hér á landi. Bailey var síðast samningsbundinn Grindavík í annað skiptið á ferlinum en þar að auki hefur hann leikið með Hamar/Selfossi, Þór í Þorlákshöfn og Njarðvík. Hann hugðist sækja um íslenskan ríkisborgararétt um áramótin en hætti við þegar í ljós kom að engin gögn væru að finna um að tekjuskattur hafi verið greiddur af laununum hans. „Þegar ég fór að vinna í umsókn minni um íslenskan ríkisborgararétt kom í ljós að ég þurfti að skila inn yfirliti um skattgreiðslur mínar undanfarin þrjú ár," sagði Bailey í samtali við Vísi. „Svo kom í ljós að ég er alls ekkert í skattakerfinu. Liðin hafa greinilega ekki verið að borga mína skatta og það er ég sem sit í súpunni. Það er greinilegt að ég hef verið ólöglegur á meðan veru minni stóð hér." Hann hefur nú hætt við að sækja um ríkisborgararétt og hefur ákveðið að snúa aftur til síns heima í Bandaríkjunum þar sem honum stendur til boða starf. „Ég leitaði ráða hjá bandaríska sendiráðinu en starfsmenn þar gátu ekkert hjálpað mér. Þau ráðlögðu mér að ráða mér lögfræðing en það er einfaldlega of dýrt fyrir mig." Vísir hefur undir höndum samninginn sem körfuknattleiksdeild Grindavíkur gerði við Bailey í apríl síðastliðnum. Þar kemur fram að þau laun sem hann fær greidd eru nettólaun eftir að skattar og gjöld hafa verið greidd. Skattalögmaður sem Vísir ræddi við segir að ef íþróttamaður sem dvelur hér á landi í minnst 183 daga á ári beri hann fulla og ótakmarkaða skattskyldu af launum sínum samkvæmt íslenskum lögum. Launagreiðanda ber að standa skil á slíkri skattskyldu en eftir því sem næst verður komist fellur Bailey í þann flokk enda hefur hann dvalið hér á landi stærstan hluta síðustu fjögurra ára. Taldi skattamál ábyrgð félagannaBailey ræðir hér við liðsfélaga sinn hjá Grindavík, Brenton Birmingham.Mynd/StefánAðspurður um hvort hann hefði ekki sjálfur átt að fylgjast með því hvort að launagreiðendur hans hefðu staðið í skilum með skattgreiðslur segir hann að sem útlendingur hafi hann átt erfitt með það. „Ég þekki ekki íslenskar reglur og lög. Ég hef alltaf heyrt að félögin eigi að sjá um að borga skattana. Ég taldi víst að fyrst ég væri starfsmaður hjá þessum félögum og að þau högnuðust á mínum starfskröftum myndu þau sjá um þessi mál. Ég taldi ekki að einstaklingurinn bæri ábyrgð á því hvað launagreiðandinn gerði." „Að minnsta kosti 60 bandarískir leikmenn hafa spilað hér á landi síðan ég kom hingað. Þeir eru líklega fleiri en það. Ég lofa því að enginn þeirra hefur grennslast fyrir um skattgreiðslur þeirra hjá annað hvort félögunum sjálfum eða skattayfirvöldum. Ég hef sjálfur rætt við fjöldamarga leikmenn sem segja allir að félögin sjálf hafi séð um að greiða skattana þeirra, bæði á Íslandi sem og í Evrópu. Við vitum lítið um þessi mál en það er alveg ljóst að ég hef engan hag á því að svíkja undan skatti. Ég er ekki með neitt slæmt á minni samvisku." Á þeim rúmum fjórum árum sem Bailey hefur dvalið hér á landi hefur hann leikið með fjórum félögum. Hann hafi ýmist fengið ávísun fyrir launum sínum eða upphæðin hafi verið millifærð á bankareikninginn hans. Hann hafi enn fremur aldrei fengið launaseðil eða yfirlit yfir launagreiðslur. „Ég hef haft samband bæði við Hamar og Þór en engin svör fengið frá forráðamönnum félaganna um mín mál. Njarðvíkingar segjast fullvissir um að þau hafi gengið frá sínum málum og greitt bæði skatta og önnur gjöld af mínum launum. Ég veit hins vegar ekki af hverju það finnast þá engin gögn um það." Hættur í körfuboltaÞegar efnahagskreppan skall á í haust sögðu langflest félagslið í Iceland Express deild karla upp samningum erlendra leikmanna sinna. Bailey var einn þeirra en ætlaði engu að síður að vera áfram hér á landi til þess að geta sótt um ríkisborgararétt. „Mér stóð til boða að fara til liða víðs vegar í Evrópu, til að mynda í Þýskalandi, Frakklandi og Írlandi. En ég ákvað að vera áfram en nú hafa allar mínar áætlanir breyst." „Ég ætlaði mér alltaf að búa á Íslandi. Mér hefur liðið afskaplega vel hér á landi og kynnst mörgu góðu fólki. Ég hef ekkert slæmt að segja um Ísland og ég er nánari mörgum hér en heima í Bandaríkjunum." Bailey hefur ákveðið að hætta atvinnumennsku í körfubolta og mun nú snúa sér að kennslu og þjálfun í heimaborg sinni í Bandaríkjunum.Ferill Damon Bailey á Íslandi 2004-5 Hamar/Selfoss 2005 Grindavík 2006-7 Þór, Þorlákshöfn 2007-8 Njarðvík 2008 Grindavík
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Golf Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Golf „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Sjá meira