Gangverk leikhúsa 3. október 2008 05:30 Mynd úr sýningunni Gangverkið í flutningi Nemendaleikhússins.
Fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur, sýningin Gangverkið, verður frumsýnt í kvöld á Litla sviði Borgarleikhússins. Gangverkið er sýning sem leikhópurinn vann og samdi á átta vikum. Það er algjörlega unnið upp úr spuna, textum og hlutum sem leikhópurinn hefur safnað sjálfur í skoðun og rannsókn á vinnuumhverfi sínu, leiksviðinu. Verkið kannar spurningar sem standa leikhúsfólki nær og er afraksturinn sá að leikhúsmiðillinn tekst á við sjálfan sig í sýningunni. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir og aðstoðarleikstjórar eru Hlynur Páll Pálsson og Friðgeir Einarsson. Um leikmynd og búninga sér Ilmur Stefánsdóttur, um lýsingu Arnar Ingvarsson og um tónlist og hljóðmynd G. Karel Másson. Nemendaleikhúsið skipa þau Bjartur Guðmundsson, Hannes Óli Ágústsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Vigdís Másdóttir, Walter Geir Grímsson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir. - vþ
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira