Útivist og gönguferðir 18. júní 2008 09:31 Komin í ferðahug. Lilja Pálsdóttir ferðast mikið um landið á sumrin. Hún ætlar auk þess að dvelja í sumarhúsi í Danmörku í eina viku. Mynd/GVA „
Mývatnssveitin er í uppáhaldi," segir Lilja Pálsdóttir, útibússtjóri í Glitni í Þarabakka, en hún er mikil ferðakona þegar kemur að því að ferðast um landið. „Einu sinni á ári er allavega farið í Þórsmörk," nefnir Lilja og bætir því við að í síðustu Þórsmerkurferð var gengið upp á Valahnúk. „Í Þórsmerkurferðunum er tíminn nýttur til að fara í léttar gönguferðir um svæðið enda alltaf eitthvað nýtt að sjá." Nýlega uppgötvaði Lilja náttúruperluna Þakgil, sem er á Höfðabrekkuafrétti á milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands. „Við hjónin fórum þangað í fyrrasumar og gengum upp á jökulinn fyrir ofan Þakgil." Á þessu svæði eru margar áhugaverðar gönguleiðir og mikil veðursæld. Í sumar ætlar stórfjölskyldan að dvelja saman í sumarhúsi í Danmörku í viku og eyða þar tíma í bænum Højby. „Sumarfríið í ár verður að vanda einnig notað til ferðalaga um landið," segir Lilja og nefnir að auðvitað þegar ferðast sé um Ísland með tjaldvagninn og allar græjur sé stefnan tekin á þann stað á landinu þar sem góða veðrið er. Það má segja að það líði ekki sá dagur á árinu að Lilja fari ekki út að ganga. „Enski springer-hundurinn okkar heldur mér efnið," segir hún, en hundinn þarf að viðra á hverjum degi, í hálftíma til þrjú korter í senn.
Fréttir Héðan og þaðan Innlent Viðskipti Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira