Múslimar fá enga afsökunarbeiðni -utanríkisráðherra Danmerkur Óli Tynes skrifar 31. október 2007 15:05 Hið umdeilda auglðýsingaplakat.
Utanríkisráðherra Danmerkur segir að enginn muni biðja múslima afsökunar á því að Danski þjóðarflokkurinn skuli nota mynd af Múhameð spámanni á einu auglýsingaplakati sínu. Æðsti klerkur múslima í Jerúsalem hefur fordæmt myndina. Hann krefst þess að hún verði bönnuð og múslimar beðnir afsökunar. Jafnframt hvetur hann ríki múslima til þess að taka þessu ekki þegjandi. Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd sýnir teikningin á plakatinu góðlegan skeggjaðan mann með vefjarhött. Það er kannski ekki furða þótt hann sé góðlegur því myndin er tekin úr bók sem múslimar gáfu sjálfir út fyrir 300-400 árum. Með plakatinu er vissulega verið að vísa til múhameðsteikninganna sem ollu svo miklu uppnámi á sínum tíma. Í textanum segir "Málfrelsi er danskt, ritskoðun er það ekki." Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur sagði um kröfu klerksins í Jerúsalem; "Ríkisstjórnin hvorki getur né vill banna þetta plakat. Og við getum heldur ekki beðist afsökunar á því. Það verða þeir að læra að skilja. Í lýðræðisríki eins og Danmörku eru það dómstólar sem setja slík takmörk, ekki ríkisstjórnin."
Erlent Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sjá meira