Sendiskrifstofa og rammasamningur Guðjón Helgason skrifar 15. september 2007 18:45
Færeyingar opnuðu í dag sendiskrifstofu í Reykjavík. Við það tækifæri var undirritaður rammasamningur um samstarf Íslendinga og Færeyinga í heilbrigðismálum. Færeyingjar reka fyrir sendiskrifstofur í Belgíu á Englandi en þar er það gert í samstarfi við Dani. Öðru máli gegnir um skrifstofuna í Reykjavík sem opnuð var síðdegis. Þar blaktir danski fáninn ekki til jafns við þann færeyska. En áður en hún var opnuð sæmdi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhannes Eidesgaard, lögmann Færeyinga, stórriddarakrossi með stjörnu fyrir framlag sitt til að styrkja samstarf landanna. Eidesgaard segir skrifstofuna hafa mikla þýðingu bæði fyrir Færeyinga og Íslendinga. Með henni verði samstarf þjóðanna skilgreint betur. Hægt verði að byggja frekar á fyrri samningum. Um leið og skrifstofan var opnuð undirrituðu Eidesgaard og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, rammasamning um samstarf Íslendinga og Færeyinga í heilbrigðismálum. Utanríkisráðherra segir vilja til að auka samstarf á þeim vettvangi og nú geti Færeyingar jafnvel sótt sérhæfða þjónustu til Íslands sem annars sé ekki hægt að veita eða byggja upp í Færeyjum. Opnun sendiskrifstofunnar verður svo fagnað með tónlist og söng í Norræna húsinu klukkan tíu í kvöld. Þá skemmta helstu stjörnur Færeyinga - Jensína Olsen, Budam og X-Factor sigurvegarinn Jegvan Hansen.
Erlent Fréttir Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira