Fíkniefnapeningum varið í meðferðarúrræði 27. júlí 2007 20:00 Peningarnir sem fundust á heimili Ye Gon í mars MYND/AP
Lögregla í Bandaríkjunum handtók á miðvikudag Zhenli Ye Gon, mexíkóskan mann af kínverskum uppruna, fjórum mánuðum eftir að einn stærsti peningafundur fíkniefnasögunnar var gerður á heimili hans í Mexíkóborg. Peningar sem samsvara 205 milljónum Bandaríkjadala fundust þar bak við falska veggi. Ye Gon er grunaður um að eiga aðild að ólöglegum innflutningi á efninu pseudoephedrine, sem notað er í framleiðslu metamfetamíns, til Bandaríkjanna. Hann var einnig eftirlýstur í Mexíkó vegna gruns um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi og vopnaviðskiptum. Þar sem enginn gerði tilkall til peninganna innan níutíu daga frá því að þeir fundust renna þeir, samkvæmt mexíkóskum lögum, til ríkisins. Mexíkósk yfirvöld hafa ákveðið að peningunum verði varið í meðferðarúrræði fyrir fíkla og í baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Ye Gon, sem á lyfjarannsóknarstofu, neitar sakargiftum. Hann hefur borið því við að Felipe Calderon, forseti Mexíkó, hafi neytt hann til að geyma peninganna er kosningarnar 2006 stóðu yfir. Calderon segir þessar fullyrðingar vera hreinan skáldskap.
Erlent Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Eldur í Sorpu á Granda Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Sjá meira