Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi 6. apríl 2007 09:41 Englandsbanki.
Englandsbanki ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Greinendur voru ekki á einu máli hver næstu skref Englandsbanka yrðu og útilokuðu ekki 25 punkta hækkun. Mjög líklegt er talið að stýrivextir verði hækkaðir um fjórðung úr prósenti í næsta mánuði til að halda aftur af verðbólgu sem hækkaði á milli mánaða. Nokkurrar óvissu gætti um ákvörðun peningamálanefndar í gær. Nefndin ákvað í síðasta mánuði að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum og byggði ákvörðun sína á því að verðbólga hafi lækkað úr þremur prósentum í 2,7 prósent í janúar. Í síðasta mánuði hækkaði verðbólga hins vegar um 0,1 prósentustig á milli mánaða og töldu nokkrir greinendur í vikunni, að bankinn myndi hækka stýrivexti í dag. Fleiri greinendur töldu í vikunni að þar sem verðbólga er enn nokkuð yfir 2 prósenta verðbólgumarkmiði Englandsbanka muni bankinn hækka stýrivexti í næsta mánuði og fari þeir þá í 5,5 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira