Markaðirnir að jafna sig 7. mars 2007 09:05 Frá markaði í Bandaríkjunum.
Hlutabréfamarkaðir í Asíu jöfnuðu sig að nokkru leyti í gær en flestar vísitölur kauphalla hækkuðu lítillega eftir talsverðar lækkanir frá upphafi síðustu viku þegar markaðirnir tóku snarpa dýfu. Hlutabréfavísitalan í Sjanghæ í Kína hækkaði um 1,9 prósent við lokun markaða, en Hang Seng-vísitalan í Hong Kong, sem tók snörpustu dýfuna í síðustu viku sem varð til þess að draga helstu fjármálamarkaði með sér, hækkaði um 0,4 prósent. Þá hækkaði Nikkei-vísitalan í kauphöllinni í Tókýó í Japan um hálft prósentustig. Ástæðan fyrir lækkununum voru áhyggjur um að verðmæti fyrirtækja og gengi hlutabréfa þeirra væri ofmetið enda hafi helstu vísitölur hækkað mikið undanfarið og væru þær að leiðrétta sig. Þá óttuðust margir, að hægja væri um of á hagvexti í Bandaríkjunum. En lækkanir á heimsmarkaðsverði á hráolíu átti sömuleiðis hlut að máli.Breska ríkisútvarpið hefur eftir stjórnanda við fjárfestingafyrirtækið Daiwa SB Investments, að þótt ráðamenn og hagfræðingar segi efnahagslífið í Bandaríkjunum á góðri siglingu þá séu fjárfestar áhyggjufullir.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupa 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Fleiri fréttir SAS í sókn og kaupa 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf