Réttarhöld hafin vegna Madrídarárásanna 15. febrúar 2007 12:15
Réttarhöld hófust í Madríd í morgun yfir 29 manns sem ákærðir eru fyrir að hafa staðið fyrir hryðjuverkum í borginni í mars 2004. 191 týndi lífi í árásunum sem gerðar voru á járnbrautarlestar borgarinnar. Búist er við að réttarhöldin standi yfir í marga mánuði enda er málið sérstaklega umfangsmikið. Ákæruskjölin eru yfir 100.000 blaðsíður og á vitnalistanum eru hundruð vitna og sérfræðinga ýmis konar. Í morgun var komið með sakborningana í brynvörðum bíl í réttarsalinn og þegar þangað var komið voru þeir fluttir í sérstaka stúku sem varin er með skotheldu gleri. Sjö af mönnunum 29 eru ákærðir fyrir morð á 191 manni og tilraun til morðs á þeim 1.755 sem særðust í sprengingunum í járnbrautarlestum höfuðborgarinnar 11. mars 2004, degi fyrir þingkosningarnar í landinu. Hinir eru ákærðir fyrir ólöglega meðferð sprengiefna og þátttöku í hryðjuverkastarfsemi. Saksóknar segja að hópurinn sem þeir stofnuðu hafi starfað sjálfstætt en tekið sér öfgakennda hugmyndafræði al-Kaída sér til fyrirmyndar. Flestir mannanna koma frá Marokkó, nokkrir eru Spánverjar og hinir svo frá öðrum löndum Mið-Austurlanda. Lögmenn þeirra segja að þeir muni allir neita sakargiftum og einn mannanna lýsti því raunar yfir í vitnastúkunni í morgun að hann myndi ekki svara neinum spurningum réttarins. Talsverð taugaspenna ríkir á Spáni vegna málsins og hefur viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar hefur verið hækkað í landinu vegna þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Fleiri fréttir Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Sjá meira