Vodafone yfir væntingum 31. janúar 2007 09:05
Viðskiptavinum breska fjarskiptarisans Vodafone fjölgaði um 8,7 milljónir um allan heim á síðasta ársfjórðungi liðins árs. Þetta er talsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir. Aukningin skýrist að mestu um aukna hlutdeild fjarskiptafyrirtækisins, sem er eitt það stærsta í Evrópu, á nýmörkuðum á borð við Afríku, Austur-Evrópu og í Miðausturlöndum. Viðskiptavinir fyrirtækisins í dag eru 198,6 milljónir talsins, að sögn breska ríkisútvarpsins. Stjórn fyrirtækisins segir afkomuspár Vodafone á áætlun en gert er ráð fyrir að tekjur aukist á milli 5 til 6,5 prósent á milli ára. Vodafone hyggur á enn frekari fjölgun viðskiptavina sinna en það er á meðal þeirra símafyrirtækja sem hafa hug á að kaupa meirihluta indverska fjarskiptafyrirtækisins Hutchison Essar, fjórða stærsta fjarskiptafyrirtækis Indlands.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira